153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[16:19]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að það sé ástæða til að taka undir með hv. þingmanni, við vitum ekki hvað gerist ef lög um starfskjör launafólks verða felld úr gildi, enda er ekki verið að leggja til að þau falli úr gildi heldur er verið að leggja til breytingu á tiltekinni grein sem kemur í veg fyrir, hjá launamanni sem kýs að standa utan félags, að hluti launa hans verði tekinn af honum gegn hans vilja. Það er verið að koma í veg fyrir það óréttlæti og þá mismunun þannig að hv. þingmaður getur alveg verið rólegur með það.

Annað sem kom fram í ræðu hv. þingmanns er að hann kannaðist ekki við, þegar hann var í forystu fyrir sínu stéttarfélagi, að forgangsréttarákvæði hefði verið beitt. En var það ekki svo, frú forseti, að í máli Sleipnis gegn Samtökum atvinnulífsins frá 2002 reyndi einmitt á forgangsréttarákvæði? Kannast hv. þingmaður við það eða er hann að halda því fram hér að þetta hafi ekki þýðingu, hann kannist ekki við að þessu hafi verið beitt?