153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[16:21]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég hélt því aldrei fram að ég kannaðist ekki við að þessu hefði verið beitt. Ég beitti því aldrei í mínu starfi sem formaður stéttarfélags, þ.e. að nýta þetta forgangsréttarákvæði. Jú, ég kannast við Sleipnismálið. En það sem ég er að halda hér fram er að það er skylda stéttarfélagsins að sjá til þess að kjarasamningurinn sé virkur, það er skylda stéttarfélagsins til að sjá til þess að sá launþegi sem vinnur samkvæmt kjarasamningnum njóti allra þeirra réttinda sem í honum felast. Þá skyldu ber stéttarfélagið, hvort sem viðkomandi starfsmaður er félagsmaður eða ekki. Fyrir það greiðir launþeginn þetta þjónustugjald, félagsgjald, vinnuréttargjald eða hvað við viljum kalla það. Þannig virkar þetta í praxís.