153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[16:22]
Horfa

Flm. (Óli Björn Kárason) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég ber mikla virðingu fyrir skoðunum hv. þm. Guðbrands Einarssonar og þeim störfum sem hann vann fyrir íslenskt launafólk. Ég hlusta mjög á það sem hann segir. Ég er hins vegar ósammála honum og við eigum örugglega eftir að takast á og eiga góðar samræður í velferðarnefnd þegar þetta mál verður þar til umfjöllunar. Ég verð hins vegar að fá að leiðrétta hv. þingmann þegar talað er um það að veita íslensku launafólki valfrelsi um það í hvaða lífeyrissjóð það greiðir. Það er rangt hjá hv. þingmanni að halda því fram, líkt og hann gerði í ræðu sinni, að verið væri að afnema samtrygginguna vegna þess að hann finnur ekki harðari varðmann um samtryggingu lífeyrissjóða heldur en þann sem hér stendur. Það er grundvallarmál að við stöndum vörð um samtryggingarhluta lífeyrissjóðakerfisins en það hefur ekkert með það að gera hvort launamaður hafi frelsi til að velja í hvaða sjóð hann greiðir samtryggingariðgjaldið og eftir atvikum launagreiðandinn samhliða. Menn verða að gera greinarmun þar á. Það skiptir máli vegna þess að það er ein helsta vörn framtíðarskattgreiðenda að hér sé öflugt samtryggingarkerfi lífeyrissjóða og öflugt lífeyrissjóðakerfi, líka með séreignarsparnaði. Ef það molnar sundur er hætta á því að tvennt gerist: Bolmagn ríkisins, hins opinbera, til að standa undir þeirri þjónustu sem við erum sammála um að ríkið skuli veita, svo sem heilbrigðisþjónustu, menntakerfi og löggæslu, verður minna, og skattbyrði framtíðarkynslóða, barna okkar og barnabarna, verður þyngri.