félagafrelsi á vinnumarkaði.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans andsvar. Nei, við erum ekki sammála alltaf, enda er ég ekki í Sjálfstæðisflokknum en þannig er það nú. Við erum þá sammála um að við viljum viðhalda þessari samtryggingu, það sé ekki verið að stofna persónubundna lífeyrissjóði úti um allar trissur eins og hefur verið gert. Við erum búnir að setja lög um að framlag í lífeyrissjóð verði að lágmarki 15,5%. Við bárum gæfu til að klára það mál á síðasta þingi, þökk sé samstöðu stjórnarinnar og Viðreisnar í því máli. Lífeyrissjóðirnir urðu ekki til af sjálfu sér. Þeir urðu til í gegnum kjarasamninga eins og svo margt annað í íslensku velferðarkerfi sem fólk nýtur góðs af í dag og finnst svo sjálfsagt. Það hefur orðið til í gegnum kjarasamninga vegna krafna íslenskrar verkalýðshreyfingar. Þannig er það bara. Velferðarkerfið okkar íslenska var að mestu leyti byggt upp vegna krafna launþegahreyfingarinnar í kjarasamningum. En gott og vel. Við verðum þá bandamenn í því að lífeyriskerfið íslenska verði ekki brotið niður og að við viðhöldum þeirri samtryggingu sem þarf að vera til staðar í kerfinu vegna þess að við viljum tryggja þá sem verst standa hvað réttindi varðar, hvort sem það er hjá hinu opinbera, stjórnvöldum, sveitarfélögum eða á vinnumarkaði. Við sjáum íslenskt fólk lenda í slysum og verða fyrir örorku og hafa lítinn rétt. Þá skiptir samtryggingin máli.