félagafrelsi á vinnumarkaði.
Frú forseti. Eitt sem ég hefði haldið að hv. þingmaður ætti að fagna, og er í þessu frumvarpi, er að tryggja þeim launamönnum sem af einhverjum ástæðum hafa ákveðið að standa utan stéttarfélags einhver ákveðin réttindi. Lágmarksréttindi sem þeir hafa ekki í dag vegna þess að viðkomandi stéttarfélag getur neitað að taka við greiðslu í sjúkrasjóði. Þar af leiðandi á viðkomandi engan rétt á greiðslu úr sjúkrasjóði en sú skylda er síðan lögð á launagreiðanda. Ég vek athygli hv. þingmanns á þessu. Okkur hins vegar greinir á. Ég hygg að rót þessa ágreinings sé sú að ég hef meiri trú á íslenskri verkalýðshreyfingu heldur en hv. þingmaður. Ég hef þá trú að starf hennar muni eflast þegar fólk tekur af fúsum og frjálsum vilja jákvæða afstöðu til þess að tilheyra verkalýðsfélagi og það sé ólíklegra með því fyrirkomulagi að við sjáum þá sundrungu sem átt hefur sér stað í íslenskri verkalýðshreyfingu á undanförnum vikum, mánuðum og árum.