félagafrelsi á vinnumarkaði.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem kom mér reyndar mjög á óvart því að hv. þingmaður talar hér um að þetta frumvarp sé til þess gert að sundra verkalýðshreyfingunni, þetta sé aðför að launþegum. Ég les mig í gegnum greinarnar sem ég að sjálfsögðu var búin að lesa áður því að ég er einn af flutningsmönnum þessa frumvarps. Ég skil ekki hvernig hv. þingmaður getur komist að þeirri niðurstöðu að það að launamaðurinn hafi frelsi til að velja sér sitt stéttarfélag sé einhver leið til að sundra verkalýðshreyfingunni. Ég bið hv. þingmann um að útskýra fyrir mér hvað hann á við í þeim efnum.
Síðan ég kom á þing hef ég iðulega heyrt samflokksmenn hv. þingmanns, þingmenn Viðreisnar, ráðast að okkur frjálslyndu öflunum í Sjálfstæðisflokknum fyrir það að við stöndum ekki fyrir frelsismálum. Hér kemur eitt skýrt frelsismál, félagafrelsi, sem er varið í stjórnarskrá. Við viljum tryggja að það verði raunverulegt á vinnumarkaði. Þá kemur hv. þm. Viðreisnar hingað upp og segir að við séum að gera aðför að launþegum. Hv. þingmaður, ég skil ekkert hvert verið er að fara með þessari orðræðu.
Ég tek undir það sem hefur komið fram hérna. Það ætti einmitt að vera ávinningur fyrir stéttarfélögin að þau væru að tryggja sér félagsmenn. Það verður kannski raunveruleg samkeppni milli verkalýðsfélaganna um það hvaða félög standa sig best. Til hvaða verkalýðsfélags vil ég greiða? Þess vegna kom mér verulega á óvart setningin sem hv. þingmaður fór með áðan um að vinnuveitendur hefðu hent hluta af launamönnum í önnur stéttarfélög. Það voru vinnuveitendur sem voru að færa fólk á milli. Er ekki þess vegna mikilvægt að tryggja raunverulegt frelsi einstaklinganna til að velja sér stéttarfélag? Ættum við ekki að geta sameinast um þá grunnhugsun sem stjórnarskráin okkar m.a. byggist á?