félagafrelsi á vinnumarkaði.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið en verð að viðurkenna að mér finnst nákvæmlega þessi orðræða sýna hversu galið þetta fyrirkomulag er. Verkalýðsfélagið átti sína félagsmenn. Það bara á þá. Þó að þú getir farið í annað stéttarfélag greiðirðu samt þjónustugjaldið, í einhverja orlofssjóði og sjúkrasjóði, og eitthvað sem þú hefur ekkert með að gera. Þú greiðir það samt. Hversu galið er það? Hvernig er félagafrelsi tryggt með þessu? Það er nefnilega engan veginn tryggt. Hversu hættulegt kann það að vera að einstaklingur hafi raunverulegt val um það að ganga úr stéttarfélagi eða velja annað stéttarfélag?
Virðulegur forseti. Þessi orðræða sem heyrist hér samræmist engan veginn minni frelsishugsjón og þó er það hugsjón sem ég taldi mig eiga sameiginlega með mörgum í þingflokki Viðreisnar.