félagafrelsi á vinnumarkaði.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekkert að láta kveða niður þær frelsishugmyndir sem ég hef um íslenskt samfélag. Þær eru mýmargar. En hversu galið er það að stéttarfélög sjái um kjarasamninga? Hversu galið er það að stéttarfélög sjái um að verja rétt launþeganna? Hversu galið er það að stéttarfélög tryggi að atvinnurekandi standi við gerða samninga? Er eitthvað galið við það að stéttarfélög sinni þeirri skyldu sinni að bera ábyrgð á því að viðkomandi launþegi fái það sem honum ber samkvæmt kjarasamningum? Er það galið? Ef það er galið ætla ég ekki að vera þessi frelsismaður sem þingmaður vill að ég sé. Ég vil halda því velferðarkerfi sem búið er að búa til, að mestu leyti vegna þess að íslensk verkalýðshreyfing hefur staðið vörð um hagsmuni fólks í þessu landi.