153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[16:45]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Hér ræðum við mikið frelsismál og ég ætla kannski að fjalla einmitt um það, hugsjónina að baki málinu. Hér hefur mikið verið rætt um málið, bæði efnislega og að formi til. Þetta hafa verið áhugaverðar og góðar umræður. Oft er farið strax í það að þetta sé aðför að verkalýðsfélögunum og að þetta mál sé fyrir hönd atvinnurekenda og ég veit ekki hvað og hvað hefur komið fram.

Í sjálfu sér er þetta mjög einfalt mál. Það er verið að gefa launþegum aukið frelsi til að hafa eitthvað um það að segja hvert þeirra félagsgjald fer og í hvaða félög þeir eru skráðir. Það er verið að gefa þeim aukið frelsi til að ákveða hvort þeir vilji vera í stéttarfélagi eða ekki. Þegar við erum með svona forgangsréttarákvæði í dag þá er þátttaka góð, eðli málsins samkvæmt. Ég tel að það þurfi ekki að gerast að þátttaka minnki þó að við breytum þessu, alls ekki. Þá þurfum við líka að ræða hvort hátt skráningarhlutfall, en við erum með um 92% skráningu í stéttarfélög, er betra heldur en það er í Danmörku, sem kemur næst á eftir okkur með 65% skráningu, þar sem félagsmenn eru miklu virkari. Hvort er betra, aðeins lægri tala af virkum félagsmönnum eða há tala af óvirkum félagsmönnum, fyrir íslenskan vinnumarkað og íslenska launþega? Ég held að við þurfum að horfa á þetta frá þessu sjónarhorni. Ef við gefum fólki aukið val, aukið frelsi, fylgir því sú ábyrgð að ákveða, númer eitt: Vil ég vera í stéttarfélagi eða ekki? Og númer tvö: Hvaða stéttarfélag sinnir mínum hagsmunum best? Hvaða félag kemur best út fyrir mig sem einstakling að starfa í ef ég ákveð yfir höfuð að það sé betra fyrir mig að starfa í félagi?

Með þessu vali og þessari ábyrgð sem við setjum á félagsmenn búum við til aukna samkeppni stéttarfélaga um félagsmenn. Þessi aukna samkeppni, hvað gerir hún? Hún lyftir félagsstarfinu upp á tærnar til að standa betur vörð um hagsmuni sinna félagsmanna, vera í betri tengslum við þá og gera þá virkari. Ég held að það sé hagur íslenskra stéttarfélaga og íslensks vinnumarkaðar að þeir sem taki þátt í honum sýni aukna virkni, taki meiri ábyrgð og liggi yfir því hvort þeir eru í félagi og þá í hvaða félagi, og að félögin þurfi bara að hafa svolítið fyrir því. Það er þannig að ef þú hefur ekki fyrir hlutunum vilja þeir drabbast niður. Þú verður að leggja svolítið á þig til að þetta gangi upp. Ég held að það muni efla félögin alveg gríðarlega að fá þessa samkeppni og hvetji þau áfram til góðra verka. Ég held að það sé grundvallaratriði í þessu máli. Með auknu frelsi fer fólk að sýna meiri ábyrgð í því hvernig það ráðstafar sínum réttindum og það býr til samkeppni sem lyftir félögunum upp á tærnar. Ég held að þetta sé algjört grundvallaratriði sem við þurfum að hafa í huga þegar við ræðum þetta. Við sjáum það í dag að þátttaka í almennum kosningum innan stéttarfélaga er mjög lítil, og þátttaka almennra félagsmanna er mjög lítil. Ég held að það geti líka verið hluti af þeim vandamálum sem við sjáum í verkalýðshreyfingunni á Íslandi í dag. Það er viss umboðsvandi forystunnar. Þegar svona fáir taka þátt í kosningum og í starfinu myndast þessi umboðsvandi sem kannski auðveldar þessar deilur sem við sjáum, því miður, innan launþegahreyfingarinnar í dag.

Ég trúi því að hér séum við með gott mál sem eykur frelsi fólks og ábyrgð þess um leið, sem gerir það að verkum að þátttaka verður öflugri og samkeppni eykst. Ég legg til að við sameinumst um það með íslenskri launþegahreyfingu að þetta mál klárist, og þá munum við uppskera betri árangur fyrir íslenska launþega. Það verður gaman að sjá hvort þessi samkeppni hefur áhrif á starfsemi félaga, hvort virkni eykst og hvort þátttaka í félögunum og skráning í þau dregst saman eða ekki.