153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[16:52]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu hér. Ég er að velta fyrir mér stöðu erlends launafólks á íslenskum vinnumarkaði. Margir koma frá löndum þar sem vinnuréttur er ekkert sérlega í hávegum hafður. Það þekkir kannski illa til stéttarfélaga. Í mörgum þessara ríkja eru stéttarfélög spillt, þau eru talin tilheyra mafíunni og fólk vill kannski ekki hafa neitt saman við stéttarfélög að sælda. Ég þekki bara úr mínu fyrra starfi að margir aðilar, sem ætluðu að verða ríkir á ferðaþjónustunni, voru ekkert að kynna viðkomandi launþegum eða þessu erlenda vinnuafli sinn rétt. Fólk var bara grunlaust um það á hvaða kjörum það ætti að vinna. Ef það raungerist, sem lagt er til í þessu frumvarpi, að t.d. á Suðurnesjum, þaðan sem við erum báðir, verði stofnuð tuttugu stéttarfélög, eða að vinnuveitendur sjái til þess að búið verði til stéttarfélag innan fyrirtækisins, hvernig sér þá hv. þingmaður fyrir sér að þessir hópar verði varðir gegn einbeittum brotavilja margra sem sækja fólk erlendis frá og ráða til vinnu?