153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[16:54]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar. Ég held að þarna sé ein af stóru grundvallarbreytingunum í þessu máli og árangurinn af þessu máli verður sá að allir hópar verða miklu betur varðir í þessu vegna þess að ef erlent vinnuafl er skráð sjálfkrafa í eitthvert stéttarfélag í dag þarf stéttarfélagið ekki að hafa mikið fyrir því að fá greiðslur frá viðkomandi starfsmanni eða leggja sig fram við að upplýsa viðkomandi um réttindi sín og þjónusta hann. En um leið og erlenda vinnuaflið sem hv. þingmaður vísar til þarf að velja hvort það vilji vera í stéttarfélagi eða ekki fer það og kynnir sér hver munurinn er hér á landi og hvernig þetta er. Þá erum við komin með hvata fyrir stéttarfélögin til að vera í samskiptum við launafólk í landinu, til að kynna það að þau séu með sérstakt prógramm fyrir erlent vinnuafl og til að sinna þeirri samkeppni að fá erlent vinnuafl til að skrá sig og telja því trú um að réttindum fólks sé betur borgið innan stéttarfélags. Eins og hv. þingmaður kom inn á er það ekki alls staðar reglan, það er oft tortryggni gagnvart þessu og líka gagnvart stjórnvöldum. Ég held að erlent vinnuafl myndi virða það ef það fær að ráða því hvort það tekur þátt í slíkum samtökum eða ekki og hvort það treystir þeim eða ekki. Það er akkúrat stéttarfélaganna að sannfæra viðkomandi hvers vegna það er rétt. Þá þurfa þau að sýna þessu erlenda vinnuafli aukna athygli til að fá það til liðs við sig.