félagafrelsi á vinnumarkaði.
Virðulegi forseti. Það er fagnaðarefni að fá tækifæri hér á þinginu til þess að ræða um grundvallarréttindi eins og þau sem við ræðum hér um. Sjálft félagafrelsið er hér undir, réttindi sem tryggð eru í stjórnarskrá og eru, hygg ég, viss grundvallarmannréttindi í huga allra þingmanna, rétturinn til að koma saman og stofna með sér félag og er hin hliðin á því þá rétturinn til að standa utan félags. Það er nú ekki síst sá þáttur málsins, þ.e. félagafrelsisins, sem í þessu máli er verið að leggja áherslu á og af ríku tilefni. Eins og rakið er í greinargerð með málinu þá hefur íslenskur vinnuréttur lítið þróast um langt skeið, sérstaklega hvað þetta atriði varðar. Allt annars konar álitamál hafa verið efst á baugi í umræðu um vinnumarkaðsréttinn á Íslandi undanfarinn áratug eða tvo. Þar hefur gengið á ýmsu, getum við sagt. Við höfum m.a. gert atlögu að því að færa okkur nær norræna módelinu. Lagt var af stað af góðum hug til þess að bæta umgjörðina á íslenskum vinnumarkaði á sínum tíma í breiðri samstöðu, a.m.k. til að byrja með, undir merkjum SALEK en það fjaraði nú fljótt undan góða skapinu í tengslum við þá vinnu og allar tilraunir til þess að gera umbætur á íslenska vinnumarkaðslíkaninu undir þeim merkjum runnu út í sandinn. Það er of langt mál að fara út í það hér hverjar ástæðurnar fyrir því eru, eflaust myndu menn svara því með ólíkum hætti hver fyrir sig. Ég get sagt fyrir mitt leyti að mér finnst einfaldlega vera svo djúpt á því að hægt sé að sameina vinnumarkaðsaðilana um þau meginmarkmið sem þar var verið að horfa til, nefnilega að leiða fram svigrúmið til launahækkana fyrir hverja kjaralotu og láta síðan lotuna snúast um hvernig ætti að skipta því sama svigrúmi.
En af hverju er ég að rekja þetta? Jú, m.a. vegna þess að í tengslum við þróun vinnumarkaðslöggjafar og rammans utan um vinnumarkaðinn þá hafa slík atriði kannski verið efst á baugi og réttur einstaklingsins hefur dálítið fallið í skuggann af þessu. Hér er tekið á dagskrá mál sem hefur lengi verið í umræðunni. Það hafa verið skrifaðar lærðar ritgerðir um félagafrelsið og neikvætt félagafrelsi og við lagadeildir háskóla er hægt að lesa sér til um hvernig rétturinn hefur þróast í öðrum löndum og hvernig Mannréttindadómstóllinn hefur tekið á þessum efnum. Eins og rakið er stuttlega í þessari greinargerð þá hefur rétturinn einmitt verið að þróast. Þannig hafa til að mynda forgangsréttarákvæði kjarasamninga smám saman verið að víkja fyrir rétti einstaklingsins til að velja sér félag. Það er í sjálfu sér rakið ágætlega hér hvernig það sem áður þótti eðlilegt á Norðurlöndunum hefur smám saman með tíma þurft að víkja, hérna er ég aftur að vísa til forgangsréttarákvæða.
Á sama tíma hefur lítið hreyfst í þessum efnum á Íslandi og lítið verið látið á þetta reyna. Dómafordæmin sem við höfum haft, t.d. frá 2002, eru úr Félagsdómi sem sætir ekki áfrýjun, er ekki æðsti dómstóll í landinu nema á þessu takmarkaða sviði þegar á reynir í tilteknu réttarsambandi. Í því efni verð ég að segja að það hangir dálítið á þunnum þræði þegar jafn stórt álitamál og við erum að ræða hér hangir á tilvísun í nefndarálit Alþingis um að það hafi ekki verið ætlunin að raska stöðu á vinnumarkaði með setningu félagafrelsisákvæðis í stjórnarskrá. Því er orðið löngu tímabært að taka þessa umræðu hér í þinginu og á margan hátt sérstakt, þegar maður hugsar til þess að undanfarinn rúman áratug hefur farið talsvert púður í þinginu og utan þings í að ræða um þörfina fyrir breytingar á stjórnarskránni og hversu mikilvægt væri að við gerðum umbætur í þágu fólksins í landinu, að þættir á borð við þennan hafi ekki komist á dagskrá. Og hvers vegna skyldi það nú vera? Ég held að ein skýringin sé sú að þetta fyrirkomulag sem hefur tíðkast hérna lengi henti kannski ágætlega þeim sem véla um málin, þ.e. Samtökum atvinnulífsins fyrst og fremst og síðan einstaka launþegahreyfingum, eftir atvikum heildarsamtökum þeirra. Þar hefur kannski bara verið ákveðið að reyna að takast á um aðra þætti en þá sem snerta hvern og einn og einbeita sér að heildarhagsmunum, stóru myndinni, sem er ekkert óskiljanlegt. Út af fyrir sig getur maður vel skilið að þegar um er að ræða breiðu línurnar, stóru myndina, þá þurfi menn að reyna að fækka ágreiningsefnunum og það sé erfitt fyrir annan hvorn aðilann. Í þessu tilviki hefði maður kannski haldið að það yrði erfiðara fyrir launþegahreyfinguna að setja málið á dagskrá en atvinnurekendur en hvorugur hefur kannski haft beina þörf fyrir að taka málið upp og velta fyrir sér hvort þurfi að breyta umgjörðinni. Þess vegna mun ekkert gerast fyrr en annaðhvort einhverjir einstaklingar krefjast þess að fá rétt sinn viðurkenndan og finna einhvern flöt á því að bera það undir dómstóla eða að við einfaldlega ræðum málið á þinginu og spyrjum okkur þessara grundvallarspurninga sem eru settar á dagskrá hér í þessu skjali: Er þetta mikilvægur réttur sem við viljum standa vörð um? Er hægt að réttlæta það að sá réttur sé takmarkaður með einhverjum hætti? Þurfa þær takmarkanir, ef svo er, að vera jafn víðtækar og við erum að horfa upp á í framkvæmd á Íslandi sem m.a. birtist okkur í því að utanfélagsmenn sem t.d. hefur verið greitt iðgjald fyrir í sjúkrasjóði standa óbættir hjá garði? Finnst einhverjum þingmanni þetta eðlilegt? Finnst einhverjum sem er kjörinn hingað inn á þing af fólkinu í landinu að það sé hægt að standa hér og verja slíkt fyrirkomulag? Trúa menn því að það sé eingöngu hægt að verja hlutverk launþegahreyfingarinnar, stéttarfélaganna í landinu, með því að svipta fólk fyrst þessum grundvallarrétti að velja sér stéttarfélag? Er það forsenda þess að við getum haldið úti og stundað það aðhaldshlutverk sem sannarlega þarf að sinna? Aðhaldi þarf að sinna til þess að halda aftur af atvinnurekendum eftir atvikum. Í því sambandi ætla ég að leyfa mér að halda því á lofti að þrátt fyrir allt þá held ég að okkur hafi um margt tekist ótrúlega vel að skapa hér farsælt samfélag í ágætisjafnvægi þegar á heildina er litið, en það er verið að færa fórnir að óþörfu. Þess vegna tek ég undir með framsögumanni málsins þegar hann leggur áherslu á að hlutverk stéttarfélaganna geti styrkst, umboð þeirra orðið skýrara, samband milli launþega og þeirra sem tala fyrir þá sterkara en á við í dag. Þetta má maður alveg leyfa sér að hugsa um þegar við heyrum talsmenn stéttarfélaganna lýsa því yfir að þeir tali fyrir hönd svo og svo marga félagsmanna sem oft og tíðum taka ekki þátt í atkvæðagreiðslum í félögum nema kannski upp á örfá prósent, innan við 10% höfum við séð dæmi um, og gleymum því ekki að ef þeir láta ekki skrá sig í félagið þá geta þeir orðið af mikilvægum atvinnuréttindum. Það er einfaldlega ekkert eðlilegt við það í nútímasamfélagi og með hliðsjón af því hvernig réttarþróun hefur verið í öðrum löndum að við sitjum hjá og gerum ekkert í því þegar verið er að þrengja jafn bersýnilega að þessum sjálfsagða rétti fólks að fá að velja sér stéttarfélag eins og raun ber vitni. Þegar við horfum upp á þetta þá öskrar á mann að það þarf að hreyfa við þessu máli.
Ég ætla ekki að fara hér út í mjög tæknileg atriði. Málið er að mínu mati afskaplega vel undirbúið. Það hefur verið mælt fyrir því og góð grein gerð fyrir helstu atriðum. Þetta byrjar bara á þessum grundvallarrétti sem er rétturinn til að standa utan félags. Það kunna að vera rök fyrir því að enginn eigi að fá frítt far með vinnu stéttarfélaganna, launþegahreyfingarinnar. Ég hef skilning á því sjónarmiði. Það getur þýtt að allir verði að leggja eitthvað af mörkum þannig að menn njóti ekki góðs af vinnu sem margir hafa lagt af mörkum til að tryggja að geti átt sér stað og fái bara frítt far með því. En það þýðir ekki að það sé hægt að svipta þá réttinum til að velja sér félag eða að það sé hægt að þvinga utanfélagsmenn til að greiða inn í alls konar réttindasjóði sem þeir síðan eftir atvikum fá ekki einu sinni notið góðs af, eða að atvinnurekandi sé neyddur til að greiða fyrir þeirra hönd. Því finnst mér þetta vera afskaplega tímabært mál. Mér finnst það varða grundvallaratriði í mannréttindakafla stjórnarskrárinnar. Mér finnst það kalla fram þá stöðnun sem hefur orðið á íslenskum vinnumarkaði um allt of langt skeið og það er sérstaklega fróðlegt að sjá hvernig þau atriði sem sett eru hér á dagskrá hafa verið tekin fyrir með skipulögðum hætti í öðrum löndum, þeim vikið til hliðar og færð nær því sem hér er lagt til. Þannig trúi ég því að við getum fullnægt hvoru tveggja í senn, þ.e. við getum vel virt þessi grundvallarréttindi og á sama tíma séð til þess að stéttarfélögin verði í góðum færum til að halda áfram að sinna sínu mikilvæga hlutverki, og eins og ég hef áður komið inn á er hægt að færa fyrir því góð rök að samband stéttarfélaganna og launþega sem vilja fylgja þeim að máli verði eftir þessar breytingar miklu sterkara en á við í dag. Þess vegna fagna ég því að þetta mál sé komið fram á þessum tímapunkti vetrar og mun fylgjast með framgangi þess hér í þinginu. Ég ætla að láta það vera mín lokaorð að við mættum oftar ræða um stórmál eins og þetta og stundum verja minni tíma í mál sem eru miklu léttvægari í stóra samhengi hlutanna.