153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[17:30]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hingað í þingsal og taka þátt í umræðu um þetta þingmannamál. Ég stóð í þeirri trú að hér væri þingflokkur Sjálfstæðisflokksins aðallega bara að hnykla vöðvana svolítið í aðdraganda landsfundar, en það er óneitanlega meiri þungi sem þetta fær þegar formaður Sjálfstæðisflokksins kemur hingað líka og tekur undir ýmis þau sjónarmið sem eru reifuð í greinargerðinni.

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Er hann fylgjandi þeim breytingum sem eru lagðar til í þessu frumvarpi? Jafnvel þótt þetta tiltekna þingmannafrumvarp verði kannski ekki að lögum, hyggst ráðherra beita sér fyrir breytingum í þessa áttina og leita stuðnings við slíkar breytingar í ríkisstjórn? Ef svo er, telur hæstv. ráðherra að þessi boðskapur og þær breytingar sem er verið að tala fyrir séu gott veganesti inn í komandi kjaraviðræður og er þetta allt saman til þess fallið að skapa frið og viðhalda stöðugleika á vinnumarkaði?