153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[17:32]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, ég get mjög afdráttarlaust svarað því að ég er fylgjandi þeim áherslum sem er að finna í þessu frumvarpi. Í ríkisstjórn mun ég hins vegar virða valdmörk ráðherra og ekki leggja til einhverjar verulegar breytingar sem heyra undir málefnasvið annarra ráðherra. Það er einfaldlega ekki á mínu sviði að koma með breytingartillögur sem varða vinnumarkaðinn og myndi það, eins og allir skilja, alltaf þurfa að eiga sér einhvern aðdraganda og samtal milli stjórnarflokkanna. Það breytir því ekki að þetta er eindregið mín skoðun og ætti engum að koma á óvart að ég sé sammála því sem fram kemur hjá þingflokki Sjálfstæðisflokksins.

En varðandi það hvort málið sé gott innlegg í stöðuna á vinnumarkaði þá segi ég: Það er aldrei rangur tími til að koma með gott mál. Ég spyr mig að því hvort verið sé að gefa í skyn að það sé eitthvað til sem heitir hagsmunir stéttarfélaganna sem eru æðri réttindum launþeganna sjálfra, að við séum með þá stöðu í samfélaginu að við getum ekki virt grundvallarmannréttindi vegna þess að hagsmunir stéttarfélaganna séu þeim æðri? Þetta tvennt ætti auðvitað alltaf að fara saman. Það sem hentar launþegunum í landinu á að vera málstaður stéttarfélaganna. Þetta er ekki þannig að við séum, með því að færa og tryggja rétt launþeganna, að grafa undan heildarsamtökum þeirra. Þetta bara gengur ekki upp í mínum huga. Það getur ekki verið að mál sem er gott fyrir launafólk í landinu sé í einhverri grundvallarandstöðu við heildarsamtök þeirra. Ef svo væri þá hafa þau orðið viðskila við sína félagsmenn í mínum huga og eru hrædd við þá. Þá er eitthvað mikið að.