153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[17:36]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Fyrst vil ég leyfa mér að efast um þessa hugtakanotkun, metþátttöku félagsmanna, vegna þess að hún er í reynd þvinguð, eins og málið gengur út á. Spurt er hvort það sé ekki í raun samhengi milli kaupmáttaraukningar og ríkrar aðildar að stéttarfélögum. Það kann að vera, ég myndi alveg geta tekið undir að öflug launþegahreyfing skipti máli og geti unnið mikið gagn fyrir sína félagsmenn.

En veltum þessu aðeins fyrir okkur í nákvæmlega þessu samhengi: Ef það er svona augljóst að samstaðan um stéttarfélögin muni skila launþegunum miklum ávinningi, getum við ekki bara leyft launþeganum að átta sig á því og taka sínar eigin ákvarðanir eða viljum við að samfélaginu sé stýrt þannig að við, vitringarnir á Alþingi, vitum betur og tryggjum fólkinu aðild að stéttarfélögum þrátt fyrir að þau skilji ekki að það er þeim fyrir bestu — vegna þess að við höfum komist að því hvað fólki er fyrir bestu? Þetta snýst nefnilega um grundvallaratriði eins og þetta: Er fólki treystandi til að taka ákvarðanir um sitt eigið líf eða þurfa atvinnurekendur og launþegahreyfingin, eftir atvikum alþingismenn, að taka fram fyrir hendurnar á fólki og segja þeim hvað þeim sé fyrir bestu? Þess vegna er kjarnaatriði í þessu máli að það snýst um frelsi, snýst um trúna á það að ef maður virkjar fólk til þátttöku um ákvarðanir sem varða þeirra eigið líf þá muni fyrst vakna líf í samfélaginu og framfarir verða, en ekki þegar við tökum þann rétt af fólki. Þótt færa megi rök fyrir því að stéttarfélögin í landinu og vinnumarkaðurinn hafi með samstarfi launþegahreyfingar og atvinnurekenda unnið mikið gagn þá bara dugar það ekki. (Forseti hringir.) Það dugar ekki til að trompa félagafrelsisrökin.