153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[17:38]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég verð nú byrja á því að þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir að gefa sér tíma til að koma hingað til samtals við okkur. Ég er ekki vanur því að ráðherrar mæti hér síðla dags til samræðna við okkur í stjórnarandstöðu um tiltekið mál og tel það vera virðingarvert að ráðherra geri slíkt. Mig langar kannski bara að nefna að ég þekki þennan ráðherra að því að hafa viljað eiga samtal við forsvarsmenn verkalýðshreyfingarinnar í aðdraganda kjarasamninga og átti m.a. slík samtöl við hann á sínum tíma þegar ég var á þeim vettvangi. Hér er verið að ræða stóru myndina, heildarhagsmuni. Hverjir eru þeir? Geta heildarhagsmunir verið fólgnir í því að hafa einhvern stöðugleika á vinnumarkaði? Hér hefur svokallað SALEK verið nefnt sem fólst í því að skoða möguleikana á því að gera kjarasamninga á svipaðan hátt og gert er á Norðurlöndunum, sem felst þá í að reikna út samkeppnishæfni þjóðarinnar á hverjum tíma fyrir sig. Við vorum og erum Evrópumeistarar í launabreytingum en erum sannarlega ekki Evrópumeistarar í kaupmáttaraukningu. Því voru margir verkalýðsforkólfar á sínum tíma tilbúnir til viðræðu um breytingar á slíku fyrirkomulagi. Því miður eru þeir verkalýðsforkólfar farnir í önnur störf og þeir sem stjórna hreyfingunni núna eru ekki tilbúnir í slíkar viðræður, alla vega ekki á þessum tímapunkti. Ég velti fyrir mér: Getur verið, af því að SALEK var sett til hliðar, að það sé ástæðan fyrir því að þetta frumvarp er lagt fram?