félagafrelsi á vinnumarkaði.
Virðulegur forseti. Hér í upphafi andsvars þá velti hv. þingmaður því fyrir sér hvort það færi betur á því að huga kannski frekar að heildarhagsmunum og stöðugleika á vinnumarkaði. Ég ætla að leyfa mér að svara með því að nefna dæmi. Ef ég myndi labba héðan út úr þinghúsinu og hitta einhvern mann á förnum vegi sem myndi vinda sér að mér og segja: Bjarni, hvers vegna ertu ekki tilbúinn til að leggja neitt á þig til að tryggja þessi grundvallarréttindi mín að fá að standa utan félags eða ganga í hvaða félag sem er? Þá myndi ég ekki treysta mér til að segja við viðkomandi: Ja, það gat ég ekki gert. Ég var ekki tilbúinn til að gera neitt til að standa vörð um þennan grundvallarrétt þinn vegna þess að við þurftum að horfa á heildarhagsmunina, stöðugleikann á vinnumarkaði eða eitthvað slíkt. Það finnst mér bara ekki tæk rök inn í þessa umræðu. Við erum að tala um grundvallarmannréttindi og með þessum rökstuðningi þá gætum við alltaf slegið því á frest: Það er ekki rétti tíminn, það myndi skapa óþarfa spennu í viðræðum aðila vinnumarkaðarins eða eitthvað slíkt. Eins og ég rakti hérna áðan þá hentar það í sjálfu sér atvinnurekendum ágætlega að viðhalda þessu fyrirkomulagi. Þess vegna er ekki líklegt að neitt frumkvæði komi úr þeirri átt. Við heyrum það hér í þingsal, sem kemur svo sem ekkert á óvart, og höfum séð það á fyrstu viðbrögðum að það hentar greinilega ekki launþegahreyfingunni að fá svona mál á dagskrá eða ekki geta þau a.m.k. tekið undir mikilvægi málsins. Því mun ekkert gerast fyrr en einhver stígur fram og segir: Mér finnst hér vera á ferðinni mjög mikilvægt mál sem verður að leggja fram á þinginu og mæla fyrir til þess að lögum verði breytt. Annars gerist ekki neitt og á meðan standa þessi mikilvægu réttindi í skugganum af heildarhagsmununum, eins og ég horfi á málið.