153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[17:43]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Telur hann að félagafrelsi sé ekki virt á Íslandi þrátt fyrir að fólk sé skikkað til að greiða ákveðið þjónustugjald til þess félags sem ver og viðheldur kjarasamningi? Er það skerðing á félagafrelsi að þurfa að greiða slíkt gjald? Ég velti því fyrir mér. Mig langar líka að kasta fram: Það er 361 kjarasamningur í gildi á Íslandi. Telur hæstv. ráðherra að það gæti verið til bóta að fjölga stéttarfélögum og fjölga þá kjarasamningum á sama tíma og samtök atvinnulífsins leggja á það ofuráherslu að við fækkum kjarasamningum, að við búum til stærri og sterkari heildir til að verja og viðhalda þeim vinnumarkaði og þeim samningum sem í gildi eru?