153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[17:44]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Svarið mitt við fyrri spurningunni er að ég tel að neikvæða félagafrelsið sé í raun og veru fótum troðið á vinnumarkaði. Það er nú það sem málið snýst um. Mér finnst dæmin sem eru rakin í þessu þingmáli vera til vitnis um að það er gert með margvíslegum hætti. Verst af öllu finnst mér þegar menn eru þvingaðir til þess, ýmist atvinnurekendur eða utanfélagsmenn, að láta klípa af launum sínum eða atvinnurekandi látinn borga hlutfall launa í sjóði sem viðkomandi launþegi nýtur einskis réttar vegna. Það er verst af öllu. Það er auðvitað þannig að jafnvel þótt greitt hafi verið í sjúkrasjóð fær sá sem ekki er félagi — ef tekið hefur verið við greiðslunni þá nýtur hann ekki réttar. Og fleiri eru dæmin.

Mér finnst þetta grundvallarmál og ég leyfi mér bara að vísa til greinargerðarinnar þar sem rakin eru dæmi um það hvernig slíkum tilvikum hefur verið vikið til hliðar í dómaframkvæmd í nágrannalöndum okkar. Ef við tökum t.d. bara forgangsréttarákvæðið eitt til umfjöllunar er það staðreynd að því hefur verið ýtt út í hverju landinu á fætur öðru og rakin eru dæmi um það í málinu.

Varðandi það hvort þetta muni leiða til þess að stéttarfélögum muni fjölga þá held ég einmitt öfugt. Ég held að stéttarfélög með tilgang sem geta höfðað til launþega muni sópa til sín félagsmönnum. Það gæti vel leitt til þess að stéttarfélögum fækki og það verði ekki þörf fyrir 300 samninga, það sé í raun og veru alveg kolröng nálgun að gera ráð fyrir því að launþegum fari að fjölga stéttarfélögum og þau lifi áfram og fjölgi upp í 500. (Forseti hringir.) Það held ég að sé einmitt öfugt við það sem mun í raun og veru gerast.