153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[18:15]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir þetta og hann var að rukka mig um mína pólitísku sýn á þessu. Ég stend við það sem ég sagði. Ég ætla ekki að halda því fram að ég sé sá maður í þessum þingsal sem hafi dýpsta þekkingu á fínni blæbrigðum efnisatriða þessa frumvarps. Ég er ekki einu sinni búinn að lesa það í þaula. Ég fagna hins vegar þeirri grundvallarumræðu sem er að eiga sér stað hér um félagafrelsið. Varðandi það sem kom fram um sjúkrasjóðina þá er ég þeirrar skoðunar að flutningsmenn málsins hafi býsna margt fyrir sér í því sem þeir hafa verið að nefna, að þarna geti verið skakkt gefið. Það get ég svo sannarlega tekið undir. Hitt er síðan annað mál sem mér finnst flutningsmenn málsins skauta kannski svolítið hjá í viðleitni sinni til að byggja undir þá skoðun sína að félagafrelsi sé fótum troðið á íslenskum atvinnumarkaði, þ.e. að myndin er ekki svona rosalega svarthvít. Það eru ákveðnir kostir sem felast í fyrirkomulaginu sem við búum við í dag. Það er ekkert hægt að horfa fram hjá því. Það eru ákveðnir og mjög miklir kostir við það. Ég er ekki til í að kollvarpa því í einu vetfangi en ég er svo sannarlega tilbúinn til að hlusta á þær röksemdir sem koma fram í stóru myndinni í þessu máli. Ég er satt best að segja frekar hallur undir þá skoðun að félagafrelsi með þeim hætti sem lagt er til í þessu frumvarpi eigi að vera við lýði frekar en hin leiðin sem við höfum í dag. Það eru hins vegar kostir sem fylgja því fyrirkomulagi sem við höfum, það gerir a.m.k. það að verkum að allir njóta ákveðinna réttinda og atvinnurekendur geta ekki með neinum hætti farið fram hjá því.