153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[18:17]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir heiðarlegt svar og ég ætla að leyfa mér að segja að ef hv. þm. Sigmar Guðmundsson hefði spurt hæstv. ráðherra þessarar spurningar sem ég spurði hér áðan og fengið það svar sem hv. þingmaður gaf, þá hefði hann mögulega sagt: Þetta er eitthvað það framsóknarlegasta svar sem ég hef heyrt. En það verður að virða það við hv. þingmann, herra forseti, að við erum hér að ræða um efnisatriði málsins og það er spennandi að fara með málið áfram og velta því upp og kafa á dýptina. Ég held að það skipti máli að við tökum fram í þessari 1. umr. málsins að þetta er ákveðið grundvallarmál og skiptir máli. Því er rétt að hver og einn þingmaður þurfi á einhverjum stigum málsins hér í þinginu, komi þetta mál til endanlegrar afgreiðslu, að horfa inn á við og gera upp við sig hver pólitísk sýn hans er. Þess vegna var þetta svona ljómandi gott framsóknarlegt svar hjá hv. þingmanni. Á þessu stigi málsins þá förum við með málið í nefnd og sjáum hvað kemur út úr því.