félagafrelsi á vinnumarkaði.
Herra forseti. Ég hef haft einstaka ánægju af því að taka þátt í þessari umræðu í dag. Ég ætla ekki að eigna mér heiðurinn af því en mér hefur fundist umræðan hér vera málefnaleg og ég hef notið þess að fá að skiptast á skoðunum við þá þingmenn sem eru mér ósammála í algjörum grundvallaratriðum, vegna þess að þeir hafa gert það með þeim hætti að þeir vilja nálgast málið út frá rökræðunni. Ég kann að meta það og fyrir það vil ég þakka.
Eitt að lokum, herra forseti. Eins og ég sagði í framsöguræðu minni fyrr í dag þá er þetta mál ekki byltingarkennt. Þetta er ekki róttækt mál á neinn hátt nema menn líti á það sem sérstaka róttækni, og þá skal ég róttæklingur kallast og heita hér eftir, að reyna og vilja berjast fyrir því að félagafrelsið sé hér virt, ekki bara í orði heldur á borði á íslenskum vinnumarkaði, bæði á almennum vinnumarkaði og hinum opinbera. Ég skal kallast róttæklingur og róttækur ef það er barátta fyrir því að tryggja að íslenskt launafólk njóti sömu réttinda og launafólk í þeim löndum sem við berum okkur saman við og tökum okkur oft til fyrirmyndar, Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Ef það er róttækni að segja: Ég vil að íslenskt launafólk njóti sömu réttinda og félagar þess í Danmörku, Noregi og Svíþjóð þá er ég róttæklingur, en í grunninn er ég varðmaður stjórnarskrárinnar og þeirra mannréttinda sem okkur öllum eru tryggð. Í grunninn er ég varðmaður mannréttindasáttmála Evrópu sem við Íslendingar höfum undirgengist að virða og tryggja þau réttindi sem þar eru.
Herra forseti. Ég þakka kærlega fyrir umræðuna. Ég hef fengið að njóta hennar og ég vona og veit að ég og hv. þm. Guðbrandur Einarsson eigum eftir að ræða þetta ítarlega og rökræða í hv. velferðarnefnd þegar nefndin tekur til við málið.