153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[18:24]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég má til með að koma aðeins inn í þessa umræðu en aðallega vil ég óska flutningsmanni og samferðafólki hans í umræðunni til hamingju með ánægjuna yfir því að málið skuli fá svona mikla pólitíska umræðu í þingsal. Þess má geta hér í hliðarsölum eru fleiri á því máli að það sé gaman að ræða pólitík í hörgul. Ég get ekki sagt að ég sé einn þeirra sem hoppa hæð sína yfir þessum tillögum heldur lít ég svo á að stéttarfélög tryggi réttindi launafólks og ef maður er ekki í félagi þá sé kannski ekki sama vörnin uppi fyrir réttindum manns. Einstaklingar sem standa utan félaga mega sín ansi lítils sem einstaklingar gegn atvinnurekandanum og ég get einhvern veginn ekki séð að þetta frumvarp dragi úr þeim aðstöðumun.

Hafandi sagt það þá veit ég að við erum auðvitað bara í 1. umr. Nú gengur málið til þinglegrar meðferðar og verður rætt í velferðarnefnd eins og fram hefur komið. Það verður mjög áhugavert að sjá innkomnar athugasemdir við frumvarpið af því að ég geri mér grein fyrir því að það muni koma ansi margar athugasemdir miðað við umræðuna sem verið hefur hér inni. En mig langar þó að spyrja hv. þingmann hvað honum finnist um þá fullyrðingu að félagafrelsið sé hugsað til þess að verja verkafólk, ekki til að koma í veg fyrir að það geti verið í verkalýðsfélögum.