153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[18:26]
Horfa

Flm. (Óli Björn Kárason) (S) (andsvar):

Forseti. Félagafrelsið er til að tryggja hagsmuni allra, alls almennings. Frelsi til að stofna félag, standa utan félags eða ganga í félag. Það eru hagsmunir íslensks launafólks að fá að ráða því sjálft í hvaða félagi það er, hvort það stendur utan félags eða tekur sig saman og stofnar verkalýðsfélag, launþegasamtök sem berjast fyrir þeim hagsmunum sem viðkomandi telur að þurfi að leggja sérstaka áherslu á. Ef við á annað borð meinum eitthvað með því að hér skuli ríkja félagafrelsi, að hér sé réttur til að standa utan félags, stofna félag eða vera í félagi þá verðum við að tryggja íslensku launafólki á almennum vinnumarkaði og hjá hinu opinbera þann rétt að taka ákvörðun um hvernig það telur sínum hagsmunum best borgið.

Ég veit og er sannfærður um það, að ef við gerum þessar breytingar verður íslenskur vinnumarkaður heilbrigðari. Það mun reyna á forystumenn verkalýðshreyfingarinnar ef þessar breytingar verða gerðar, ég geri mér grein fyrir því. Það verða gerðar auknar kröfur til þeirra. Verkalýðsfélögin munu örugglega gera meiri kröfur til sjálfs sín vegna þess að það skiptir þau máli að standa sig í stykkinu. En þetta mun líka reyna á atvinnulífið, á atvinnurekendur, vegna þess að það er afskaplega þægilegt fyrir íslenska atvinnurekendur að hafa fyrirkomulagið eins og það er. Það er ódýrara, þægilegra og minna vesen. Ég er ekkert viss um, hv. þingmaður, að allir séu hoppandi kátir yfir þessu frumvarpi í Borgartúni.