153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[18:28]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nei, það kann að vera að ekki séu allir hoppandi kátir í Borgartúni yfir þessu frumvarpi, en öðruvísi mér áður brá að hv. þingmaður er allt í einu orðinn fulltrúi róttæklinganna og ég væntanlega íhaldsins í þessu samhengi. En það er þá bara eitthvað til að skemmta sér yfir.

Af því að hv. þingmaður nefnir þetta með atvinnurekendurna þá er staðan í kerfinu sem við búum yfir hérlendis einstök og eftir henni tekið. Hún er öfundsverð, við berum af með þessa miklu þátttöku. Ég veit að það hefur verið til umræðu í dag að það sé svo og svo mikið að marka það, en engu að síður er hún yfir 90% eins og ég held að hv. þm. Guðbrandur Einarsson hafi komið inn á. Þetta þykir besta umgjörðin af því að hér er meiri þátttaka í stéttarfélagi en víðast hvar annars staðar. Ég fer ekki ofan af því, virðulegi forseti, að ég er enn þá þeirrar skoðunar — en ítreka það að ég hlakka til að sjá og fylgjast með umfjöllun í velferðarnefnd — að stéttarfélagið og þá aðild mín að því, tryggi mér réttindi og verji mig á markaðnum. Hefur hv. þingmaður ekki áhyggjur af því að við töpum þessari einstöku stöðu hérlendis, nái þetta frumvarp fram að ganga?