153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

273. mál
[18:52]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framlagningu málsins sem ég styð. Ég er sammála því sem kom fram í máli hv. þingmanns að með framkvæmd þessara laga hefur komið upp ákveðinn vafi, mig langar að nota það orð, um þá stefnu sem við erum með á Íslandi um hvernig við högum skipun embættismanna og annað slíkt, eitthvað sem er að mínu mati rétt að taka af. Það er sannarlega meginregla, grundvallarregla í okkar kerfi að ráðningar séu almennt á faglegum forsendum, að öll þau sem hafa áhuga á möguleika á embætti hafi tækifæri til að sækja um og annað slíkt. Þetta eru undantekningar sem á að beita mjög þröngt, eins og öðrum undantekningum með lögum. Það er ætlast til að þeim sé beitt í undantekningartilfellum. Þessu hefur hins vegar ekki alveg verið beitt þannig og þess vegna sé ég nauðsynina á því sem þingmaðurinn leggur til.

Mig langar kannski að spyrja hv. þingmann um hvað honum finnst um þessar tvær mismunandi leiðir. Í sumum ríkjum eru t.d. ráðuneytisstjórar einfaldlega pólitískt skipaðir og mig langaði bara að spyrja hv. þingmann um afstöðu hans til þessara ólíku leiða, annars vegar þessara ópólitísku ráðninga sem eiga að skapa einhvers konar faglegt jafnvægi við ráðherra og síðan pólitískrar skipunar sem gerir það að verkum að þegar nýr ráðherra tekur við embætti þá þarf hann kannski ekki að vinna með fólki sem hann treystir sér ekki til í nánu samstarfi eins og er á milli ráðherra og ráðuneytisstjóra. Því myndi ég kannski vilja fá persónulega, pólitíska afstöðu þingmannsins til þessa.