153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

273. mál
[19:01]
Horfa

Flm. (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sitt andsvar. Fyrst ber að nefna að í þessu frumvarpi er ekki verið að raska með neinum hætti 21. gr., sem mig minnir að hafi verið vísað til við setningu ráðuneytisstjóra í ráðuneyti hæstv. ráðherra Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur. Í raun fjallar þetta frumvarp einvörðungu um 36. gr.

Varðandi hvort það séu engar undanþágur þá snúa þær breytingar sem hér eru lagðar til í raun að því að taka tiltekna embættismannaflokka út fyrir sviga. 36. gr. er þessi flutningsheimild sem er undanþága frá meginreglunni um auglýsingaskyldu í 7. gr. starfsmannalaga. Það sem frumvarpið snýst um er í raun ekki róttækara en svo að þarna er verið að taka ákveðna embættismannaflokka og segja: Nei, 36. gr. getur ekki tekið til þeirra. Það eru þeir embættismenn sem heyra til löggjafarvaldsins og dómsvaldsins. Eins og ég fór yfir þá tel ég að það sé í góðu samræmi við stjórnarskrárákvæðið um flutning starfsmanna, en í því ákvæði er einmitt tekið sérstaklega fram að löggjafinn geti undanskilið ákveðna embættismannaflokka.

Í öðru lagi þá felst í þessu frumvarpi ákveðin breyting er varðar ráðuneytisstjóra. Það verður í raun áfram hægt að færa ráðuneytisstjóra niður en það verður ekki hægt að skipa í embætti ráðuneytisstjóra á grundvelli 36. gr. heldur verður að fylgja þeim málsmeðferðarreglum sem koma fram í 18. og 19. gr. stjórnarráðslaganna.