Störf þingsins.
Herra forseti. Ríkisstjórnin hefur náð að fullkomna nýja tegund sinnuleysis, sinnuleysis sem birtist í aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Það er ekki hægt að kalla þetta aðgerðaleysi þótt þetta sé það eiginlega. Í næsta mánuði verður haldinn samráðsfundur um aðgerðir gegn ofbeldi í fyrsta sinn á Íslandi. Þessu fagnar allt fólk sem vill vinna gegn ofbeldi í samfélaginu.
Alþingi samþykkti fyrir þremur árum að slíkur fundur yrði haldinn haustið 2019. Núna er árið 2022. Við samþykktum þingsályktun um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess sem er að renna sitt skeið á enda á þessu ári og það er fyrst núna sem árlegur landssamráðsfundur er haldinn. Þetta skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart grasrótarsamtökum, einstaklingum, þolendum, aðstandendum, öllu fólkinu sem hefur hrópað á aðgerðir árum saman, birtist í þessu.
Það birtist líka í því að hæstv. mennta- og barnamálaráðherra hafi mætt á mótmæli fyrir utan MH þar sem nemendur voru að kalla eftir aðgerðum til að berjast gegn kynferðisofbeldi innan veggja skólanna. Hann var mættur til að hlusta og hann hljómaði dálítið eins og hann hefði verið með lokuð eyrun síðustu fimm ár þegar hver metoo-bylgjan á fætur annarri skall hér á þinginu og við brugðumst við. Ráðherranum hafði meira að segja gengið svo illa að hlusta í öll þessi fimm ár að hann hlustaði ekki einu sinni á sjálfan sig þegar hann flutti tillöguna um aðgerðir gegn ofbeldi þar sem vísað er til metoo-bylgjunnar og það er meira að segja ein aðgerð þar sérstaklega um að efla kynjafræði og kynfræðslu innan skólakerfisins. Sú aðgerð átti að vera komin að fullu til framkvæmda árið 2020.
Hvað er ráðherrann búinn að gera? Hvað er ríkisstjórnin búin að gera til að uppfylla þá aðgerð? Skipa starfshóp og fá skýrslu. Þannig sýnum við þolendum ofbeldis ekki þá virðingu sem þau eiga skilið.