153. löggjafarþing — 20. fundur,  19. okt. 2022.

áhrif breytinga á 194. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940.

346. mál
[15:42]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Hér er lögð fram beiðni um skýrslu sem lýtur að því að fara yfir þann árangur sem orðið hefur eftir að hegningarlögum var breytt á þann veg að tekin voru af öll tvímæli um það að ef ekki er samþykki fyrir kynferðismökum þá sé um nauðgun að ræða. Það er mjög mikilvægt að við áttum okkur á því hvort þetta hafi skilað tilætluðum árangri, hvort kerfið sem sýslar með þessi mál hafi tekið mark á þessari lagabreytingu og síðast en ekki síst að bera árangur okkar saman við önnur ríki sem hafa farið svipaðar leiðir. Þannig að það er mjög mikilvægt að ná þessari skýrslu fram og ég bíð spenntur eftir niðurstöðum hennar sem ég efast ekki um að verði vandaðar og skili sér á réttum tíma. Þetta er mjög mikilvægt mál því að við verðum að hafa sannfæringu fyrir því að þegar við erum að lýsa yfir vilja okkar (Forseti hringir.) hér í þinginu og breyta lögum að það nái fram að ganga í framkvæmdinni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)