153. löggjafarþing — 20. fundur,  19. okt. 2022.

Störf án staðsetningar.

[15:44]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. fjármálaráðherra, Bjarna Benediktssyni, fyrir að koma hér og ræða hvernig mögulegt sé að nýta tæknina og störf óháð staðsetningu til að dreifa opinberum störfum betur um landið en nú er gert. Í stjórnarsáttmálanum koma fram göfug markmið um störf óháð staðsetningu og þar segir að sett verði markmið um hlutfall opinberra starfa utan höfuðborgarsvæðisins og að stefnan sé að störf hjá ríkinu verði ekki staðbundin nema eðli starfsins krefjist þess sérstaklega. Í gegnum tíðina hefur verið tilhneiging til að líta á verkefni af þessu tagi sem afmörkuð byggðaverkefni en ég lít þannig á að ef þessi sýn og markmið eigi að verða að veruleika til framtíðar þurfi stofnanir fjármálaráðuneytisins að vinna mjög markvisst að framgangi þeirra, t.d. kjara- og mannauðssýsla ríkisins, skrifstofa stjórnunar og umbóta og Umbra. Mér leikur því forvitni á að vita hvernig vinnu að þessum markmiðum miðar í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og hvaða stofnanir eru þar í lykilhlutverki. Þá væri einnig áhugavert að fá upplýsingar um mismunandi hlutverk stofnana við að framfylgja sýninni um að fólk eigi raunverulegt val um hvar það býr. Hvernig er stefnunni til að mynda fylgt eftir þegar störf eru auglýst?

Fleiri störf óháð staðsetningu kalla á mun meiri sveigjanleika í húsnæðismálum opinberra stofnana, hvar svo sem þær eru staðsettar. Velta má upp þeim möguleika að nýta betur það opinbera húsnæði sem er til staðar á hverju svæði, t.d. þegar staðbundinn starfsmaður getur bætt á sig verkefnum sem eru óháð staðsetningu. Blanda staðbundins hlutastarfs og fjarvinnu gæti bæði sparað opinberum aðilum fé, vinnuaðstöðu og ferðalög. Áskorunin sem fylgir dreifingu starfa er alltaf aðgengi að aðlaðandi vinnuumhverfi og vinnuaðstöðu. Starfsstöðvaklasar eða samvinnuhús hafa gefist vel víða um land og ánægjulegt er að einnig er kveðið á um áframhaldandi uppbyggingu þeirra í stjórnarsáttmálanum. Dæmi um slík hús eru Múlinn í Neskaupstað, Gígur í Mývatnssveit og eldri hús eins og Nýheimar á Höfn og Vonarland á Egilsstöðum. Þar eru starfsstöðvar, útibú eða aðstaða fyrir starfsmenn frá opinberum aðilum eða einkaaðilum.

Hæstv. ráðherra. Hefur vinnan kallað á breytta hugsun í húsnæðismálum opinberra stofnana? Hafa t.d. Ríkiseignir og Framkvæmdasýslan skilgreint hlutverk í þessu sambandi? Þá langar mig að spyrja hvernig vinnu miði við skilgreiningu starfa sem þurfa áfram að vera staðbundin. Það er mikilvægt að vanda nálgunina við skilgreiningu staðbundinna starfa. Ég tel að byrja þurfi á að skilgreina störf sem eru staðbundin í dreifbýlustu samfélögunum en ekki öfugt, störf þar sem hægt er að nota fjarvinnu til að efla og styrkja þjónustu sem eðlilegt er að sé boðið upp á dreift um landið, t.d. með því að færa verkefni til innan stofnana og milli stofnana til staðbundinna starfsmanna. Fyrst þarf að greina þessi verkefni sem krefjast viðveru starfsmanna á tilteknum stað á landinu án þess að þörf sé þar á fullu starfi. Þarna býður tæknin upp á ótal tækifæri til að skapa eftirsóknarverð störf, þar sem staðbundin þjónusta er tryggð og viðkomandi starfsmaður nýtir vinnuaðstöðu við að leysa fleiri verkefni. Þannig má ná árangri í byggðamálum, nýta sérþekkingu og opinbera innviði betur. Við eigum dæmi um lausnir af þessu tagi, vel heppnuð dæmi, t.d. hefur starfsmaður sýslumannsins á Norðurlandi eystra á Þórshöfn lokið rafrænni skönnun fjölskyldumála á landsvísu samhliða því að þjónusta íbúa Langanesbyggðar. Smærri framhaldsskólar hafa lengi nýtt fjarkennslu til að miðla sérhæfðri þekkingu milli skóla og þannig nýtt sérþekkingu starfsmanna og aukið um leið námsframboð.

Að lokum vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hver er staðan og hvernig er árangur við dreifingu opinberra starfa metinn? Hver er framtíðarsýnin? Er framtíðarhugsun í verkefninu þar sem markvisst verður byggt ofan á reynsluna ár hvert og farið yfir aðgerðir til að yfirstíga hindranir ef á móti blæs? Ef það er eitthvað sem síðustu ár hafa kennt okkur þá er það það að við höfum hæfileika til að aðlaga okkur hratt og örugglega að breyttum aðstæðum og því velti ég því fyrir mér hvort það standi nokkuð í vegi fyrir því að öll þau markmið sem við erum að ræða hér náist á tiltölulega stuttum tíma.