153. löggjafarþing — 20. fundur,  19. okt. 2022.

Störf án staðsetningar.

[16:06]
Horfa

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Framsókn hefur í áraraðir talað með því að við séum með skýra stefnu um fjarvinnu eða störf án staðsetningar. Það er skýrt í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar hver viljinn er og þar er kveðið á um að störf hjá ríkinu verði ekki staðbundin nema eðli starfsins krefjist þess sérstaklega. Störf án staðsetningar eru ný hugsun í stofnanakerfi ríkisins, hugsun sem skilur starfsemi frá steinsteypu og veitir fólki tækifæri til að starfa í heimabyggð, þeirri byggð þar sem einstaklingum og fjölskyldum þeirra líður best. Störf án staðsetningar eru hugmyndafræði sem veitir byggðum landsins stórkostleg tækifæri til að vaxa og dafna. En við þurfum að líta til tækifæra í hverri byggð fyrir sig. Það er mikilvægt að tryggja atvinnumöguleika utan höfuðborgarsvæðisins og einnig þarf að tryggja að það sé ekki hægt að taka þessi störf með sér af viðkomandi stað og færa þau aftur til Reykjavíkur ef fólk flytur. Það skiptir máli að við séum með öfluga og skýra stefnu í þessum málum og að hún sé ekki hverful eftir því hver tekur við viðkomandi stofnun. Það verði sett ákveðin skylda á stofnanir ríkisins þegar kemur að því að tryggja framboð starfa án staðsetningar. Ég tek undir með hv. þm. Líneik Önnu Sævarsdóttur þegar hún segir að ef þessi sýn og markmið eigi að verða að veruleika þurfi stofnanir fjármálaráðuneytisins að vinna mjög markvisst að framgöngu þeirra. Við þurfum öll að taka höndum saman ef við ætlum að tryggja þetta mikilvæga byggðaverkefni.