Störf án staðsetningar.
Virðulegi forseti. Síðustu áratugi höfum við verið í mikilli varnarbaráttu varðandi fólksfækkun íbúa á landsbyggðinni. Það hefur sýnt sig að fólk vill búa úti á landi. Ungt fólk vill setjast að og ala upp börn sín í fjölskylduvænu og rólegu umhverfi. Því er gríðarlega mikilvægt að fólki standi til boða spennandi og vel launuð störf. Um langan tíma höfum við reynt að færa stofnanir út á land með misjöfnum árangri. Það hefur verið erfitt að færa heilu stofnanirnar með manni og mús en nú hefur tæknin séð fyrir þessu. Það hefur því verið ævintýralega spennandi að fylgjast með nýju ráðuneyti hæstv. ráðherra Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, ráðuneyti iðnaðar, háskóla og nýsköpunar, en þar eru nær öll störf auglýst án staðsetningar. Ráðuneytið er fyrsta ríkisstofnunin til að gefa skýrt út að nær öll störf verði án staðsetningar. Það er til eftirbreytni fyrir allar opinberar stofnanir að feta í fótspor hæstv. iðnaðar-, háskóla- og nýsköpunarráðherra og fjölga störfum án staðsetningar. Höfum það samt í huga að það er tómt mál um að tala að ætla að flytja störf út á land nema til staðar séu góðar gagnatengingar. Því er nauðsynlegt að klára ljósleiðaravæðingu landsins. Úti um allt land býr nú fólk sem hefur valið sér búsetu vegna þeirra gæða sem búsetan býður upp á og starfar hjá fyrirtækjum eða stofnunum í borginni eða hjá fyrirtækjum úti um allan heim. Fólk velur hvar það vill búa og ræðst því ekki búsetan af því hvar vinnu er að fá. Framtíðin liggur í því að vinnan fylgi manneskjunni en manneskjan elti ekki vinnuna. Í raun snýst þetta um frelsi, frelsi til að búa og starfa þar sem maður helst óskar.