153. löggjafarþing — 20. fundur,  19. okt. 2022.

Störf án staðsetningar.

[16:21]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og öllum þeim þingmönnum sem lögðu mismunandi sjónarmið til umræðunnar. Það kom mjög margt gagnlegt fram og margt sem rann í gegnum hugann meðan umræðan fór fram og ég nefni hér nokkur atriði. Fyrst auðvitað að framboð á störfum óháð staðsetningu er jafnréttismál í mun víðari skilningi en ég kom inn á í minni inngangsræðu og getur skapað sveigjanleg störf. Í svörum hæstv. ráðherra var sérstaklega nefnt hlutverk mannauðstorgsins og Deiglunnar sem ég held að sé mikilvægt að þróa áfram en auðvitað líka að fylgja því fast eftir að allar stofnanir beri ábyrgð og ég brýni ráðherra í að fylgja þessum málum eftir. Eru t.d. til leiðbeiningar eða er reynslu markvisst miðlað á milli stofnana um leiðir til að bregðast við áskorunum varðandi starfshætti sem auðvelda samstarf á mörgum starfsstöðvum til að byggja upp starfsanda, starfsumhverfi og jákvæðan stofnanabrag þar sem starfsmenn vinna dreift um landið? Þá var áhugavert að heyra af skýrslunni sem byggði á svörum frá því fyrir faraldurinn en ég trúi ekki öðru en að viðhorfin hafi breyst og ég veit a.m.k. um eina stofnun sem telur að 90% starfa sé hægt að vinna óháð staðsetningu. En það eru áskoranir og tækifæri. Hið opinbera gæti haft úr stærri hóp að velja, en ef við viljum fjölga virkilega störfum á landsbyggðinni þá gæti þurft jákvæða mismunun eða einhverja lágmarksstýringu. Eru einhver störf t.d. sem ekki er hægt að sinna erlendis frá? Þessu þarf að velta fyrir sér. Ég velti líka fyrir mér hvort markmið um dreifingu starfa verði einungis sett fram milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis eða greint frekar niður á byggðir eða landshluta og hafi eitthvert mælaborð til að halda utan um þróunina.