153. löggjafarþing — 20. fundur,  19. okt. 2022.

Störf án staðsetningar.

[16:23]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég hafði ekki komið inn á það hvernig við framkvæmum árangursmat á dreifingu starfa en það mat fer fram hjá Byggðastofnun sem heldur úti mælaborði um fjölda stöðugilda ríkisstarfsmanna eftir landshlutum, flokkað niður á sveitarfélög sömuleiðis og málaflokka ráðuneyta og Byggðastofnun starfar undir innviðaráðherra til að þessar helstu upplýsingar skili sér þangað og auðvitað út í samfélagið. Mig langar aðeins að láta þess getið hér undir lok umræðunnar, sem hefur verið fróðleg, að við þurfum að hafa það í huga að störf án staðsetningar eru auðvitað engin trygging fyrir því að störfin verði til úti á landi, þvert á móti getum við alveg eins búist við því að það verði enn meiri ásókn í að sinna störfum nær höfuðborgarsvæðinu, sem aftur tengir okkur við þá umræðu sem við höfum oft tekið hérna í þinginu um mikilvægi þess að færa fýsískt staðsetningu stofnana út á land til þess að tryggja og festa störfin þar. En hvert erum við komin ef við segjum síðan í beinu framhaldi af þeirri umræðu allri að í sjálfu sér sé okkur sama hvar störfin eru? Þá þurfum við augljóslega að vera meðvituð um að það er engin trygging fyrir því. En ég kýs hins vegar að líta þannig á að þetta séu ofboðslega mikil tækifæri fyrir fólk af landsbyggðinni og ég vakti athygli á því í minni framsögu hér að það er ofboðslegt tækifæri fyrir aukna framleiðni og hagræðingu hjá hinu opinbera að nýta stafrænu tæknina sem á endanum getur skilað sér í mun betri opinberri þjónustu. Það er enginn vafi á því að það er fólk út um allt land, starfandi víða í landsbyggðunum, sem getur lagt ríkinu lið við að veita framúrskarandi þjónustu. En þetta hefur verið fróðleg umræða hér í dag.