153. löggjafarþing — 20. fundur,  19. okt. 2022.

staðfesting ríkisreiknings 2021.

327. mál
[18:35]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Hér mæli ég fyrir frumvarpi til laga um staðfestingu ríkisreiknings 2021 í samræmi við ákvæði laga um opinber fjármál.

Ríkisreikningur er gerður á grundvelli alþjóðlegs reikningsskilastaðals fyrir opinbera aðila, svonefnds IPSAS-staðals. Áritun ríkisendurskoðanda er án fyrirvara en með ábendingu um innleiðingu á breyttum reikningsskilum. Rekstrarafkoma ársins 2021 samkvæmt ríkisreikningi var neikvæð um 130 milljarða kr. Tekjur námu samtals 871 milljarði kr., þar af voru skatttekjur 709 milljarðar kr. Gjöld ríkissjóðs fyrir fjármagnsliði námu 1.078 milljörðum. Þar af voru rekstrartilfærslur 473 milljarðar og laun og launatengd gjöld 319 milljarðar. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur námu 60 milljörðum kr. Matsbreytingar eigna námu 76 milljörðum. Hér er um að ræða virðismatsbreytingu eignarhluta í Landsbankanum og Íslandsbanka sem nú eru metnir á innra virði samkvæmt ársreikningi félaganna fyrir árið 2021, en voru í ársbyrjun metnir á 80% af innra virði. Hlutdeild í afkomu félaga og samrekstrar var jákvæð um 61 milljarð kr.

Heimsfaraldur kórónuveiru hafði töluverð áhrif á afkomu ársins líkt og árið áður. Ríkisstjórnin fylgdi eftir ákvörðun fyrra árs og kynnti ný úrræði til þess að styðja beint við efnahagslega vernd og viðspyrnu heimila og fyrirtækja. Þessi úrræði fólu í sér 68 milljarða útgjöld fyrir ríkissjóð á árinu.

Virðulegi forseti. Efnahagsreikningur ríkissjóðs hefur tekið umtalsverðum breytingum síðustu ár. Samkvæmt efnahagsreikningi voru eignir samtals 2.784 milljarðar kr., skuldir og skuldbindingar samtals 2.618 milljarðar og eigið fé 166 milljarðar. Þrír stærstu eignaliðirnir eru eignarhlutir í félögum upp á 1.188 milljarða, samgöngumannvirki upp á 668 milljarða og fasteignir upp á 268 milljarða. Rekstrarafkoma ríkisreiknings er birt samkvæmt reikningsskilastaðli fyrir opinbera aðila, IPSAS, eins og ég hef áður nefnt, en heildarafkoma í fjármálaáætlun og fjárlögum er birt samkvæmt hagskýrslustaðli, svonefndum GFS-staðli. Báðum aðferðum er ætlað að tryggja samkvæmni og alþjóðlega samanburðarhæfni. Þess ber að geta að afkoma ríkissjóðs samkvæmt ríkisreikningi er því ekki sambærileg við afkomumarkmið fjármálaáætlunar og fjárlaga. Í ríkisreikningi er birt séryfirlit þar sem niðurstaðan er flokkuð í samræmi við GFS-flokkun fjárlaga og reyndist neikvæð um 225 milljarða. Afkoman samkvæmt GFS-staðlinum er 101 milljarði kr. betri en fjárlög ársins 2021 gerðu ráð fyrir. Frávik frá uppfærðum áætlunum eins og þær voru birtar með fjáraukalögum fyrir árið 2021 voru kynntar hér á þinginu á haustmánuðum 2021. Frávikið var jákvætt um 69 milljarða.

Virðulegi forseti. Þrátt fyrir áhrif heimsfaraldurs sýnir ríkisreikningur sterka stöðu í árslok 2021 fyrir ríkissjóð. Afkoma ársins var betri en áætlað hafði verið og við erum með skýra áætlun um að treysta grunninn á ný til að bregðast við óvæntum áföllum komandi ára. Þar erum við því svo sannarlega á veg komin. Allar áætlanir sem við höfum gert undanfarin ár hafa staðist og gott betur, þ.e. við höfum farið fram úr væntingum okkar hvað afkomuna varðar. Þetta hefur birst í fjármálaáætlun, fjárlögum, fjáraukalögum, og hefur verið til umræðu hér, m.a. í tengslum við fjárlög næsta árs.

Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til fjárlaganefndar og til 2. umr. að aflokinni þessari umræðu.