staðfesting ríkisreiknings 2021.
Virðulegur forseti. Ég get tekið undir margt af því sem hér er sagt. Ég held samt að þetta sé ekki alveg svona klippt og skorið. Ég er sammála því að menn eigi að gæta sín í niðursveiflu að gefa sér ekki að hagkerfið verði í lægð um alla framtíð og ég held að núverandi ríkisstjórn hafi sýnt það í verki, hún bara tók á sig hallann og sagði: Þetta er tímabundið ástand og þetta er ekki til að hafa áhyggjur af. Ég er alveg sammála því að hér hafi verið beitt á margan hátt allt of aðhaldssamri ríkisfjármálastefnu eftir fjármálaáfallið. Það er nú kannski einn lærdómurinn af þeim árum. Þá geta menn borið saman Evrópusambandið og þá stefnu sem almennt var keyrð í Evrópusambandinu og svo hins vegar Bandaríkjunum sem fóru í gríðarlega mikla örvun á hagkerfinu. Þegar stóru stærðirnar eru skoðaðar kemur bandaríska hagkerfið mun betur út úr þeim samanburði hvað varðar endurheimt landsframleiðslu og sköpun nýrra starfa. Hins vegar eru fleiri þættir sem maður þarf að taka með í þessu og þess vegna segi ég að þetta sé kannski ekki alveg svona klippt og skorið vegna þess að stundum eru menn að fara í einskiptisátak eða einskiptisútgjaldaliði sem getur verið skynsamlegt að gera þegar t.d. er niðursveifla og þá fylgir það ekki sem viðvarandi útgjaldaliðir inn í alla framtíð. Svo er hitt sem ég vildi nefna sem er samspilið milli samneyslunnar annars vegar og fjárfestingar hins vegar og tilfærslurnar í þessu samhengi sem eru t.d. almannatryggingarnar. Ef við skoðum tilfærslukerfi okkar og berum saman við fjárfestingu og skoðum þetta sem hlutfall af heildarútgjöldum þá hafa tilfærslurnar verið að taka til sín meira og meira á undanförnum árum sem hefur þrengt að fjárfestingargetunni. Það eru svona ákvarðanir líka sem maður þarf að taka með og spyrja sig: Hvernig viljum við að fjárfestingargeta ríkissjóðs sé yfir tíma? Þá má ekki þrengja of mikið að henni með stækkun annarra útgjaldaliða. (Forseti hringir.) Og í því sambandi skiptir máli sem við erum að gera núna sem er að búa til efnahagsreikning ríkisins, skoða eignahliðina til að við getum áttað okkur á hvað við þurfum að afskrifa mikið og svo máta það við það sem við erum að fjárfesta (Forseti hringir.) til að sjá hvort heildareignirnar eru að rýrna eða stækka.