staðfesting ríkisreiknings 2021.
Forseti. Já, vissulega er það svo, ég tek undir orð hæstv. ráðherra um þetta. En við söfnum líka fyrir einskiptisútgjöldum. Þegar það er uppsveifla í gangi þá erum við ekki að leggja eins mikið í svona einskiptisverkefni og þá eigum við afgang í þau þegar niðursveiflan kemur á móti. Alveg nákvæmlega eins og með almannatryggingakerfið, þá værum við að borga aukalega þegar það er niðursveifla og safna aukalega í þann lið þegar það er uppsveifla og lítið atvinnuleysi. Þetta eru bara liðir sem ganga upp og niður eftir hagsveiflunni og sjálfvirku sveiflujafnararnir sjá til þess að grípa þá. Einskiptisverkefni eru nákvæmlega eins, þau eru ekkert öðruvísi hluti af verkefnum ríkisins þannig að ég sé ekki vandamálið í þessu nema það að við verðum að vera betri í rauninni í greiningum á því hvort við séum með rétt meðaltal, hvort við erum til lengri tíma að horfa á 2% hagvöxt, 2,5% hagvöxt, það getur munað alveg um 0,1 prósentustig til eða frá í stærðunum. Þá þurfum við að elta mun minni sveiflur heldur en við erum að gera núna þar sem við erum að elta 5% sveiflur fram og til baka, en langtímahagvöxtur er kannski upp á 2,5% eða 3,5% eða eitthvað svoleiðis sem langtímaspárnar enda alltaf í. Í staðinn fyrir að vera í samdrætti og fjármögnun á t.d. einskiptisverkefnum með tilliti til hagsveiflunnar, taka lán fyrir þeim í niðursveiflu og borga lánin upp í uppsveiflu, þá hugsum við um þetta sem bara langtímaverkefni og þá allt í einu breytist, myndi ég halda, áherslan og stöðugleikinn sem ríkisfjármálin eiga að hafa.