153. löggjafarþing — 20. fundur,  19. okt. 2022.

staðfesting ríkisreiknings 2021.

327. mál
[19:16]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að drepa á nokkrum hlutum sem komu fram í umræðunni hér áðan. Fyrir mér sýnir þessi ríkisreikningur sem hér liggur fyrir að ríkissjóður er undirfjármagnaður. Ef við skoðum töflu 2 á bls. 3 þá sjáum við að heildartekjur samkvæmt reikningsskilum aðlöguðum að fjárlagagerðinni eru 883,2 milljarðar. Heildarútgjöldin eru 1.108 milljarðar. Ef við skoðum fjárlögin þá eru heildartekjurnar 773,9 milljarðar, heildarútgjöldin tæpir 1.100 milljarðar. Ég á sæti í fjárlaganefnd og þá sér maður þetta aftur og aftur: Heilbrigðiskerfið er undirfjármagnað, Landspítalinn er undirfjármagnaður. Við eyðum sem hlutfalli af vergri landsframleiðslu minna til heilbrigðismála en aðrar þjóðir. Það er það sem er stóra vandamálið. Þetta kemur fram í fréttum af bráðamóttökunni og ástandinu þar, núna er fólk hreinlega farið þaðan, að við leggjum ekki nægilega mikla rækt við grunnstoðir heilbrigðiskerfisins og meira að segja eru um 100 manns á Landspítala sem ættu að vera annars staðar, ættu að vera í ódýrara rými. Þegar fjármálaráðherra talar um að við ættum að nota góðærið, aukapeninginn sem kæmi þar, til fjárfestinga — vissulega ættum við að gera það en ekki að setja það inn í tilfærslukerfi sem rekstur, venjulegan rekstur. Vandamálið er að hinn venjulegi rekstur ríkissjóðs er undirfjármagnaður, það er stóra vandamálið, og það er að molna undan heilbrigðiskerfinu. Á bráðamóttöku Landspítalans eru hjúkrunarfræðingarnir einfaldlega farnir. Ég þekki það vel, systir mín var hjúkrunarfræðingur þar og hún er búin að gefast upp, farin annað og þær eru fleiri farnar. Það er það sem er hættulegt.

Ásakanir á flokk hæstv. fjármálaráðherra eru þær að verið sé að svelta til einkavæðingar, sem er alls ekki nógu gott. Ef það kemur góðæri þá eigum við að sjálfsögðu að nota fjárfestingarkerfið, fjárfestingarnar af peningunum til að auka tekjugrunninn. Það er það sem á að gera. Tekjugrunninn í dag er ekki nógu breiður. Hann er ekki nógu öflugur og það er af því að við erum að undirfjármagna grunnstoðir kerfisins, svo það sé sagt.

Mig langar aðeins að koma að einu. Það var mjög áhugaverð umræða hérna varðandi fjármálakerfið, krísuna 2008, en þá höfðu Bandaríkin staðið sig mun betur en Evrópusambandið. Það er alveg rétt að þeir gerðu það á fjármálasviðinu en þeir gerðu það ekki á pólitíska sviðinu. Hvað var það t.d. sem gerðist í Bandaríkjunum? Það var ekki ein sála ákærð þar eftir ástandið 2008, ekki einn einstaklingur. Við settum hér á fót embætti sérstaks saksóknara sem stóð sig með prýði og ákærði fólk. Ég tel að Bandaríkin séu núna, miðað við ástandið í dag, að súpa seyðið af því hvernig þeir tóku á fjármálakrísunni pólitískt séð, sérstaklega varðandi ákærur og annað slíkt. Þess vegna var síðasti forseti þar kjörinn sem bein afleiðing óánægju út af því hvernig tekið var á málum árið 2008. Þannig að þó að þeir hafi brugðist vel við efnahagssviðinu þá þurfti líka að gera það rétt á pólitíska sviðinu.

Ég tel að við eigum að reyna að læra betur af bæði krísunni 2008 og ekki síst af Covid. Ég hef það á tilfinningunni, ég veit það ekki, en ég held að íslenska ríkið hafi verið of duglegt að sprauta út peningum í hagkerfið, sett of mikið. Það sem gerist líka eftir 2008 er að ef þú dælir út peningum í hagkerfið þá hækkar eignaverð, þá hækka hlutabréf. Það er það sem er að gerast. Það þarf að rannsaka það og ég skora á hæstv. fjármálaráðherra að standa fyrir — ég hef bara ekki haft tíma til þess, mig langar að gera það, það er ein af þessum hugmyndum sem maður hefur um þingmál, að rannsóknarnefnd Alþingis skoði breitt hvernig við stóðum okkur í Covid; hvernig þríeykið stóð sig, hvernig hagstjórnin stóð sig og hvernig samfélagið kom út úr kófinu, til að læra af því. Það er ekki til að finna sökudólg eða eitthvað slíkt heldur til að læra af því. En ég veit það ekki, mín tilfinning er sú að við höfum komið rosalega vel út úr Covid, það var 65 milljörðum meira í ríkissjóði í fyrra en við töldum að yrði. Það var af því við hleyptum fleiri erlendum ferðamönnum hér inn, sem gerði hagkerfinu mjög gott. En ég er ekkert svo viss um að ríkið hafi staðið sig rosalega vel á efnahagssviðinu. Tilfinning mín er sú að það hafi verið jafnvel gengið of langt, svo það liggi fyrir.

En að þessu slepptu þá tel ég þetta með undirfjármögnunina — hún kemur fram í stöðu ríkisreiknings, ég get ekki sagt annað og ég finn það vel eftir setu mína í fjárlaganefnd að við erum að vanfjármagna heilbrigðiskerfið, grunnstoðina í heilbrigðiskerfinu, og það er ekki nógu gott. Í einu ríkasta samfélagi heims þá erum við að baksa við að reka eitt hátæknisjúkrahús og það eru búnar að vera ár eftir ár, 10–15 ár, bráðum 20 ár, fréttir af ástandinu á Landspítalanum. Ég vona bara að þessi ríkisstjórn beri gæfu til þess í eitt skipti fyrir öll að fjármagna spítalana rétt og við getum verið stolt af okkar Landspítala. Þetta er eina hátæknisjúkrahúsið á landinu. Þegar ég var yngri og fjármálaráðherra var yngri þá var þetta ekkert í fréttunum. Ég man ekki eftir því að talað væri um ástandið á Borgarspítalanum eða Landspítalanum, þetta er algjörlega nýtilkomið. Þetta kom eftir 2008. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni en þakka fyrir góðar umræður.