153. löggjafarþing — 20. fundur,  19. okt. 2022.

peningamarkaðssjóðir.

328. mál
[19:22]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til nýrra heildarlaga um peningamarkaðssjóði. Frumvarpið er á þskj. 339, 328. mál. Frumvarpið var áður flutt á 152. löggjafarþingi (570. mál) en náði ekki fram að ganga og er nú endurflutt að mestu óbreytt.

Frumvarpið kveður á um innleiðingu í íslenskan rétt á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2017/1131, um peningamarkaðssjóði, en meginefni frumvarpsins er lögfesting reglugerðarinnar og nauðsynlegra ákvæða þar að lútandi, svo sem um hvernig eftirlit fari fram, viðurlög og setningu stjórnvaldsfyrirmæla.

  Reglugerðin um peningamarkaðssjóði gildir um sjóði um sameiginlega fjárfestingu sem annaðhvort eru verðbréfasjóðir eða sérhæfðir sjóðir sem fjárfesta í skammtímaeignum og hafa sem markmið að bjóða ávöxtun í samræmi við peningamarkaðsvexti eða ávöxtun sem varðveitir virði fjárfestingar. Í reglugerðinni er kveðið á um skilyrði þess að mega reka peningamarkaðssjóði, en þau skilyrði varða m.a. starfsleyfi rekstraraðila peningamarkaðssjóðs, form sem heimilt er að reka sjóðina á, fjárfestingarheimildir, áhættustýringu og verðmat eigna sjóðanna, innlausnir og ytri stuðning við peningamarkaðssjóði.

Eina efnisbreytingin sem lögð er til á frumvarpinu frá fyrri flutningi þess varðar fjárhæðamörk vegna sekta sem heimilt er að leggja á einstaklinga, en þar er lagt til að hámarksfjárhæð sekta verði 800 millj. kr. í stað 65 millj. kr. Sú tillaga er til samræmis við sambærileg ákvæði í öðrum lögum á fjármálamarkaði.

Einnig er lögð til sú viðbót frá fyrri framlagningu að tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2021/2261, sem breytir tilskipun um verðbréfasjóði að því er varðar notkun rekstrarfélaga á lykilupplýsingaskjölum, verði innleidd í íslenskan rétt með breytingu á lögum um verðbréfasjóði og lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.  

Virðulegi forseti. Þau ákvæði sem lögð eru til í frumvarpinu koma einungis til með að hafa áhrif á þá rekstraraðila sem ákveða að bjóða upp á peningamarkaðssjóði. Ekki er vitað hver eftirspurnin eftir stofnun nýrra peningamarkaðssjóða á grundvelli löggjafarinnar kemur til með að verða og erfitt er að áætla hvað margir sjóðir eru nú þegar í rekstri hér á landi sem koma til með að falla undir reglurnar. Auknar skyldur bætast við rekstraraðila sjóða sem koma til með að hafa peningamarkaðssjóði í rekstri, svo sem í tengslum við umsókn um staðfestingu fyrir sjóðina og eftirlit með fjárfestingarstefnu þeirra, áhættustýringu, verðmat eigna o.fl. Gert er ráð fyrir auknum umsvifum Fjármálaeftirlitsins vegna fyrirhugaðrar lagasetningar, en talið er að áhrif innleiðingar reglugerðarinnar og undirgerða hennar rúmist innan núverandi rekstraráætlana Fjármálaeftirlitsins og áhrif á ríkissjóð verði því engin.

Ég legg til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að lokinni þessari umræðu og svo til 2. umr. hér í þinginu.