peningamarkaðssjóðir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir framsöguna. Þetta er mikilvægt frumvarp og mig langar að spyrja hæstv. fjármálaráðherra. Núna er verið að innleiða tilskipun Evrópusambandsins frá 2017, nr. 1131, og fleiri ákvarðanir frá ESB. Er ekki eðlilegt að við í ljósi reynslunnar af hruninu setjum inn sérreglur hvað Ísland varðar, í ljósi þess sem gerðist með peningamarkaðssjóðina? Þeir voru auglýstir sem trygg fjárfesting, eins og innstæður, og íslenskur ríkissjóður lenti í mikilli krísu. Ef ég man rétt þurfti ríkið að hlaupa undir bagga varðandi peningamarkaðssjóði í Landsbankanum og margir töpuðu stórum fúlgum í öðrum bönkum út af peningamarkaðssjóðum og hvernig þeir voru markaðssettir. Mig langar að drepa á nokkrum atriðum í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem ég fann meðan hæstv. ráðherra var að flytja framsöguna, með leyfi forseta:
„Eigendur bankanna fengu verulegar fyrirgreiðslur í gegnum dótturfélög bankanna sem ráku peningamarkaðssjóði. Rannsókn á fjárfestingum peningamarkaðssjóða á vegum rekstrarfélaga stóru bankanna þriggja leiddi í ljós að sjóðirnir fjárfestu mikið í verðbréfum tengdum eigendum bankanna. Vandséð er að tilviljun ein hafi ráðið þeim fjárfestingaákvörðunum.“
Ég tel óþarfa að fara meira út í þetta, en þarf ekki að setja strangari reglur á Íslandi um meðferð peningamarkaðssjóðanna, um þá peninga sem fara inn í peningamarkaðssjóðina í ljósi reynslunnar af hruninu svo að við endurtökum ekki leikinn? Það var alveg með ólíkindum hvernig eigendur bankanna fóru með þessa peninga í peningamarkaðssjóðunum. Þetta er eitt mesta svindl Íslandssögunnar sem átti sér þarna stað, svo ekki sé nefnt Icesave og það allt þar sem þeir reikningar voru bara notaðir sem peningamarkaðssjóðir erlendis í ljósi „Ponzi scheme“ vegna hárra vaxta. En a.m.k. að við setjum strangari reglur um Evrópusambandið hvað varðar peningamarkaðssjóði en kemur fram í þessu frumvarpi í ljósi sögulegrar reynslu okkar.