153. löggjafarþing — 20. fundur,  19. okt. 2022.

peningamarkaðssjóðir.

328. mál
[19:27]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, það er alveg hárrétt að vísbendingar um of náin tengsl við eigendur fjármálafyrirtækja eru alvarlegt mál og á því var tekið. Við höfum sem sagt verið að uppfæra regluverkið sem á að koma í veg fyrir slík óeðlileg hagsmunatengsl. En það er erfitt að alhæfa almennt um alla þessa ólíku peningamarkaðssjóði í umræðu vegna þessa frumvarps. Það er kannski alveg sérstök umræða. Það var þegar upp var staðið ekki jafn mikið högg á peningamarkaðssjóðunum og mörgum verðbréfasjóðum sem þurftu að afskrifa mun hærri fjárhæðir og við þekkjum hvernig fór með bæði hlutabréf og skuldabréf og annað þess háttar. En þetta eru í sjálfu sér alveg réttmætar ábendingar. Ég held hins vegar að þetta mál snúi í raun og veru að því að auka aðhaldið með rekstri sjóða sem myndu vilja markaðssetja sig á okkar markaðssvæði og að því leytinu til er verið að færa sig í þessa átt sem hv. þingmaður kallar eftir.