153. löggjafarþing — 20. fundur,  19. okt. 2022.

peningamarkaðssjóðir.

328. mál
[19:29]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir andsvarið. Ég tel að Ísland þurfi að hafa sérreglur á fjármálamarkaði, aðrar en eru í öðrum Evrópuríkjum. Það er mín skoðun. Ég hef unnið í Fjármálaeftirlitinu, ég hef unnið í efnahagsbrotadeild og í tveimur norrænum bönkum í Ósló og ég tel satt að segja viðhorf banka á Íslandi gagnvart íslenskum stjórnvöldum vera algerlega með ólíkindum. Það kemur bráðum skýrsla Ríkisendurskoðunar um þetta, en það hvernig Íslandsbanki hagaði sér í sölunni á hlutabréfum Íslandsbanka er algerlega með ólíkindum, að þeir skuli hafa leyft starfsmönnum að selja sjálfum sér bankann. Svona myndi enginn annar í heiminum þora að gera, aldrei. Af hverju? Af því að þeir eru hræddir við stjórnvöld, fjármálaeftirlitin. Hér er það ekki þannig, hér er það nánast öfugt, alla vega var það þannig þegar ég var í Fjármálaeftirlitinu fyrir hrun. Þess vegna tel ég að það þurfi að vera strangari reglur hvað þetta varðar á Íslandi, í ljósi sögunnar. Ég beini þessum orðum líka til hæstv. fjármálaráðherra sem fulltrúa eigenda og handhafa hlutabréfs ríkisins í Íslandsbanka og Landsbankanum. Hann fer með eignaryfirráð í bönkunum og það er hann sem ber ábyrgð á eigninni. Ég ætla rétt að vona að hann grípi í taumana ef hlutinn um Íslandsbanka í skýrslunni verður þess eðlis að eigandi þarf að grípa í taumana. Hver einasti eigandi úti í heimi myndi alla vega láta gera breytingar á stjórn og æðstu stjórnendum fyrirtækisins ef það kæmi eitthvað mjög neikvætt þar. Ég hefði haldið að þeir mættu jafnvel vera búnir að gera það.

Ég ítreka að íslenskt miðstjórnarvald er frekar veikt og hérna virðast bankar og fleiri aðilar, sterkir aðilar, fara sínu fram, algerlega. Saga peningamarkaðssjóðanna er sú allra svartasta, sérstaklega gagnvart almenningi. Ríkið saup seyðið af þessari framgöngu gagnvart almenningi og það má ekki koma fyrir aftur. Við eigum að setja lög og reglu í ljósi þessarar sögu.