peningamarkaðssjóðir.
Virðulegur forseti. Ég er bara sammála því að það þurfi að gilda strangar reglur um þessi efni og það þarf sömuleiðis að vera búið þannig um hnútana að eftirlitsaðilar geti sinnt sínu hlutverki. Ég get ekki í sjálfu sér getið mér til um það nákvæmlega hvernig athugun t.d. Fjármálaeftirlitsins á þessum aðilum, sem tóku þátt í söluferlinu með Íslandsbanka, lýkur og við ætlum heldur ekki að fara að þjófstarta hérna umræðu um bankasöluna sem Ríkisendurskoðun er að fara að skila. En í tilefni af þeim orðum að fjármálaráðherra hljóti að grípa inn í þá vil ég bara vekja athygli á því að það eru ákveðin hlutverkaskipti líka milli ráðuneytisins og Bankasýslunnar hvað varðar það að stjórn bankans er komin í ákveðna armslengd og það er sérstök tilnefningarnefnd og annað þess háttar. En þetta getum við allt saman rætt og er efni í umræðu, svo sannarlega, sem ég efast ekki um að verður tekin hérna áður en langt um líður.