153. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2022.

útrýming fátæktar.

[10:47]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Við erum hérna að ræða um tiltölulega viðkvæman málaflokk sem er fátækt og þann hóp sem minnst hefur á milli handanna í samfélaginu. Þess vegna vil ég ekki grípa til þess ráðs að vera hérna uppi með mjög stór orð. Ég óska eftir því að þessi umræða fari fram af þokkalegri yfirvegun og að við styðjumst við staðreyndir. Ég hvet hv. þingmann, vegna þess að hann er sérstaklega að horfa til eldri borgara, að fara nú inn á vef sem við opnuðum sérstaklega fyrir umræðu um þessi mál, tekjusagan.is. Skoðaðu þar hóp 68 ára og eldri, skoðaðu hvernig kjör þeirra, ráðstöfunartekjur, það sem fólk hefur milli handanna eftir að það hefur fengið bætur, lífeyrisgreiðslur, greitt skatta o.s.frv., hvernig þær tölur hafa þróast yfir tíma, hvernig þessi ríkisstjórn sem núna situr og sú sem á undan henni sat hafa samanlagt fleytt öllum tekjutíundum þess aldurshóps upp í hæðir sem við höfum aldrei áður séð, hvernig gögnin sýna að á sama tíma og lífeyrisgreiðslurnar eru að hækka eru bæturnar líka að hækka, sem segir mikla sögu þegar verið er að tala um allar þessar skerðingar.

Sem sagt, þrátt fyrir að fólk hafi hærri og hærri lífeyristekjur eru skerðingarnar ekki þannig að það dragi úr bótaréttindunum. Þess vegna er það þannig að sá hópur sem er hér sérstaklega settur á dagskrá í þessum fyrirspurnatíma hefur líklega aldrei í íslenskri sögu haft jafn mikið milli handanna. Og þetta á við um allar tekjutíundirnar.

Hér er því haldið fram að við gerum aldrei neitt. Um síðustu áramót þá tvöfölduðum við frítekjumark atvinnutekna úr 100.000 kr. í 200.000 kr. Er það eitthvað sem skiptir engu máli? Jú, ég held að það skipti máli og ég held að það sé til vitnis um að það er rangt að við gerum aldrei neitt. Nýjustu tölur sem ég sá frá OECD sýna að fátækt, a.m.k. þegar horft er á hina hlutfallslegu fátækt, er minnst á Íslandi.