153. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2022.

útrýming fátæktar.

[10:50]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir svörin. Staðreyndin er sú að ég get séð greiðslur til eldri borgara sem eru undir 300.000 kr. Það er alveg sama hvað hæstv. fjármálaráðherra talar um, það er staðreynd. Hann vill alltaf fara í meðaltöl. Hvað ver ríkið miklum fjármunum í að standa undir skuldbindingum gagnvart eldri borgurum? Sú upphæð nemur aðeins 2,6% af vergri landsframleiðslu. Annars staðar á Norðurlöndunum er hlutfallið 5,4–11% og meðaltal OECD-landanna er 8,2%. Sem sagt: Við erum að setja brotabrot til eldri borgara miðað við önnur lönd og OECD. Hvað segir hæstv. fjármálaráðherra um þetta og hvernig í ósköpunum getur hann sagt það hér í ræðustól að þeir sem eru með undir 300.000 kr. á mánuði hafi það gott?