153. löggjafarþing — 21. fundur,  20. okt. 2022.

útrýming fátæktar.

[10:51]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Við gerðum breytingar á kerfunum okkar fyrir allnokkrum árum sem m.a. tryggðu að heildargreiðslur til þeirra sem búa einir fóru yfir 300.000 kr. Hér er hv. þingmaður eflaust að tala um einstakling sem hefur enga aðra framfærslu af nokkru tagi og lifir því á berstrípuðum bótum og greiðir af þeim skatta. Til að skilja stöðu viðkomandi þarf að spyrja fleiri spurninga, t.d. hvort viðkomandi býr einn, hverjar heimilistekjurnar eru o.s.frv. Það sem tölurnar sýna er að þetta séu alger undantekningartilvik.

Hv. þingmaður sakar mig um að nota alltaf meðaltöl. Ég sagði það sérstaklega áðan að við getum skoðað þetta inni á tekjusagan.is fyrir hverja einustu tekjutíund. Skoðið lægstu tekjutíundina, næstlægstu, þriðju lægstu, fjórðu lægstu — allar þessar tekjutíundir hafa stóraukið ráðstöfunartekjur sínar á meðan ég hef verið fjármálaráðherra. Þannig er að útgreiddur ellilífeyrir hefur farið úr því að vera innan við 40 milljarðar á ári yfir í 100 milljarða á ári. Og hvert heldur hv. þingmaður að þessir peningar fari?