rekstrarumhverfi fjölmiðla.
Virðulegur forseti. Ég er sammála hv. þingmanni í því að ég tel að ekki sé skynsamlegt að veikja RÚV. RÚV gegnir mjög mikilvægu hlutverki hér. Það er hins vegar svo að auglýsingar á RÚV hafa verið mikið til umræðu og margir hafa efasemdir um hvort RÚV eigi að hafa sínar auglýsingatekjur. Einnig er svo í þeim ríkjum sem hafa farið þá leið að taka auglýsingarnar af sínum ríkismiðlum, þá nefni ég Frakkland og Spán, að vegna þessarar stafrænu byltingar sem við erum stödd í þá hefur svigrúmið sem myndaðist í þessum ríkjum ekkert endilega farið til innlendra fjölmiðla heldur fremur til erlendra streymisveitna eða þeirra á þeim vettvangi. Við sjáum öll að þetta umhverfi er auðvitað gjörbreytt, en ég kalla líka eftir því að meðan við erum í þessari heildarendurskoðun að fjölmiðlar þurfi sömuleiðis að huga að nýjum (Forseti hringir.) tekjumöguleikum fyrir sig sjálfa til að þeir séu sjálfbærir.