153. löggjafarþing — 21. fundur, 20. okt. 2022.
atvinnuréttindi útlendinga.
28. mál
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur fyrir stuðninginn við frumvarpið efnislega. Ég veit ekki hvort ég biðst afsökunar á því fyrir fram en það er mjög freistandi að koma hingað upp vegna þess, eins og fram hefur komið í mínu máli og máli hv. þingmanns, að þessi breyting er líka í stjórnarfrumvarpinu um breytingar á lögum um útlendinga. Ég ætla að leyfa mér að spyrja hv. þingmann: Er hún sammála öðrum þeim breytingum sem til stendur að leggja til í þessu frumvarpi?