153. löggjafarþing — 22. fundur,  25. okt. 2022.

Störf þingsins.

[13:40]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Það rak marga í rogastans síðastliðinn mánudag þegar bent var á þá tilfærslu verkefna sem ríkisstjórnin stóð fyrir með samþykkt laga um nikótínvörur síðastliðið sumar, þegar rifjað var upp að nú væri verkefnið komið til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun væri upptekin við að hafa eftirlit með nikótínpúðum, sem mörgum þótti álíka vitlaust og að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun væri upptekin við að hafa eftirlit með leikföngum. Hvað næst? Ætlum við að flytja málefni Lyfjaeftirlitsins til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar? Fjölmiðlanefndar?

Virðulegur forseti. Í framsöguræðu sinni tókst hæstv. velferðarráðherra að sneiða algerlega fram hjá því atriði að þetta eftirlit væri að flytjast til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þó að það væri nefnt 68 sinnum í frumvarpinu og greinargerð. Ég held að það færi vel á því að um leið og við reynum að einfalda stofnanakerfi landsins til að ná fram hagræðingu og betri nýtingu á mannskap og fjármunum að við hlustum á það sem ég leyfi mér, með leyfi forseta, að hafa eftir framkvæmdastjóra þess sviðs sem fer með eftirlitið:

„Þótt eftirlitið gangi vel,“ segir framkvæmdastjórinn, „þá þykir það stundum skjóta skökku við að þessi stofnun, sem er að meginstefnu til ætlað að sinna stjórnsýsluverkefnum á sviði húsnæðismála, mannvirkjamála og rafmagnsöryggismála, sinni í auknum mæli, markaðseftirliti leikfanga og nikótíns.“

Ég vil hvetja hæstv. ríkisstjórn til að vinna að því að færa til verkefni þar sem það er skynsamlegt. En þegar farið er í þá vegferð eingöngu til að hringla til í stofnanakerfi landsins þá er betur heima setið en af stað farið.