Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Sjávarútvegur er ein mikilvægasta atvinnugrein þjóðarinnar. Í dag er sjávarútvegsdagurinn og allar helstu hagtölur í sjávarútvegi ræddar. Í grein í Morgunblaðinu í dag var einmitt reifuð umfjöllun frá fundi í morgun um afkomu í greininni. Þar segir að hagnaður íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja hafi numið 65 milljörðum kr. á síðasta ári og þá jukust tekjur hins opinbera um 28% á milli ára, m.a. vegna hækkunar veiðigjalda. Það er ljóst að stórútgerðin þolir hærri veiðigjöld en við ákvörðun veiðigjalda er mikilvægt að tekið sé tillit til smærri útgerða og hagsmuna sjávarbyggðanna svo veiðigjald verði ekki til þess að auðvelda stórútgerðinni að hrifsa til sín enn stærri hluta allra veiðiheimilda í krafti stærðar sinnar og aðstöðu. Síðustu ár höfum við horft upp á veiðiheimildir halda áfram að safnast á færri hendur — sameign þjóðarinnar, lífsbjörg margra byggða vítt og breitt um landið. Það verður að virða rétt sjávarbyggðanna og tryggja betur byggðafestu aflaheimilda og koma í veg fyrir að smærri sjávarbyggðir séu rúnar lífsbjörginni með uppsöfnun fárra auðmanna og fyrirtækja á veiðirétti. Það verður að grípa til aðgerða til að snúa ofan af samþjöppun veiðiheimilda, rekja saman tengda aðila til samræmis við það sem annars staðar gerist, tryggja heilbrigða viðskiptahætti og gagnsæi. Við þurfum í senn að horfa til mikilvægis sjávarútvegs fyrir einstök byggðarlög þar sem lífið hefur lengi snúist í kringum sjósókn og sjávarútveg og sögulegs réttar þeirra til að njóta auðlindarinnar og þess að njóta arðs af auðlindinni. Veiðigjöld af þessari stærstu auðlind okkar Íslendinga eru mikilvæg til að standa undir innviðum okkar, ekki síst í sjávarbyggðunum sjálfum. Þau þarf hins vegar að ákvarða með tilliti til stærðar fyrirtækja og burða. Þannig greiði stórútgerðin sem hagnast mest hærra gjald en smærri útgerð sem hagnast minna og skilar minna til eigenda sinna en gegnir þýðingarmiklu hlutverki fyrir byggðarlög (Forseti hringir.) vítt og breitt um landið, ekki síst þau smærri og brothættari sem hafa farið illa út úr samþjöppun aflaheimilda á fáa staði og til stórútgerðarinnar.